The effect of 6-week deep water running intervention on physical fitness of female football players : a randomized control trial
Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Inngangur: Djúpvatnshlaup (DWR) hefur verið notað við þjálfun hlaupara og endurhæfingu slasaðra íþróttamanna. Rannsóknir benda til þess að hægt sé að auka hámarkssúrefnisu pptöku (VO2max) með DWR en það eru ekki mikið vitað um áhrif DWR á aðra líkamlega getu íþróttafólks. Markmið þessarar rannsóknar voru að skoða áhrif DWR samanborið við árif hlaups á landi (LBR) á VO2max, snerpu, sprett hraða, lóðrétta stökkhæð og sparkhraða hjá fótbolta stelpum. \nAðferð: þátttakendur voru 45 fótbolta stelpur á aldrinum 14-17 ára, Inngripið tók 6 vikur með 3 æfingum í viku. Hámarkssúrefnis upptaka, snerpa, sprett hraði, lóðrétt stökkhæð og sparkhraði var mælt fyrir og eftir inngripið. \nNiðurstöður: DWR hópurinn bætti VO2max meðaltalið um 3,5% og lóðrétta stökkhæð um 7,6%. það fannst marktækur munur hjá DWR á VO2max (P=0.000) og lóðréttri (P=0.000) stökkhæð fyrir og eftir inngripið, það fannst líka marktækur munur á hámarkssúrefnisupptöku (P=0.000) og lóðréttri stökkhæð (P=0.000) fyrir og eftir inngripið hjá LBR. DWR hafði engin neikvæð áhrif á snerpu, sprett hraða, lóðrétta stökkhæð og sparkhraða. Það var ekki marktækur munur á DWR og LBR hópunum eftir inngripið í neinni breytu en \nÁlyktun: Það er hægt að nota DWR til að auka VO2max hjá fótbolta stelpum án þess að það hafi neikvæð áhrif á snerpa, sprett hraði, lóðrétt stökkhæð og sparkhraði. Djúpvatnshlaup er góð leið til að stunda þolþjálfun án álags á liðamót sem hefðbundin land þjálfun veldur \nLykilorð: DWR, Djúpvatnshlaup, Fótbolti, Snerpa, sprettur
Source: Skemman
Author: Gunnar Egill Benonýsson 1993-
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Orthopedics and Sports Medicine
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6990629860
