Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Briskirtilskrabbamein er lífshættulegur sjúkdómur sem á upptök sín í þekjufrumum brisganga. Fimm ára lifun er undir 10% og er sjúkdómurinn í fjórða sæti yfir dánarorsök af völdum krabbameins, en lítil sem engin framför hefur orðið á lifun sjúklinga seinustu þrjá áratugi. Nýleg þróun í öræxlarækt í þrívídd hefur gert vísindamönnum kleift að rækta sjúklingasýni sem endurspegla betur aðstæður innan líkamans og gefur því betri mynd af raunverulegu lyfjanæmi og genatjáningu æxlisins. Í flestum tilfellum er æxlið ekki skurðtækt en þá eru sýni tekin með nálarsýni eða skorin eftir að lyfjameðferð er hafin. Erfitt hefur reynst að rækta sýni sem tekin eru undir þessum kringumstæðum og því hafa rannsóknir verið gerðar á notkun æðaþelsfrumna í samrækt með krabbameinsfrumum til þess að styðja við vöxt æxlisfrumnanna. Markmið þessa verkefnis var að rannsaka lifun æðaþels í þrívíðri rækt og áhrif æðaþelssamræktar á lyfjanæmi og genatjáningu briskrabbameinsfrumulínanna CAPAN-1 og MiaPaca-2. Niðurstöður rannsókna á lifun æðaþelsfrumna í þrívíðri rækt með CellTiterGlow, tjáningu CD31 æðaþelsmarkers og mælingu á GFP jákvæðni frumna sýndu að æðaþelsfrumur fjölga sér ekki í þrívíðri rækt og að lifun þeirra lækkar hratt fyrstu þrjá dagana, og er orðin nánast enginn eftir viku. Í framhaldi var lyfjanæmi frumulínanna mælt í tvívíðri og þrívíðri rækt þar sem æðaþeli var einnig bætt í ræktina. Í þrívíðu lyfjaprófunum, var marktækt minna næmi í samræktum CAPAN-1 og æðaþelsfrumna fyrir lyfinu Olaparib og í samrækt MiaPaca-2 og æðaþelsfrumna fyrir lyfinu Oxaliplatin, samanborið við lyfjanæmi frumuræktar án æðaþels. Heilt yfir var þó mikil dreifni í gögnunum sem sýndi að þessi uppsetning hentaði ekki vel í lyfjanæmispróf. Því var sett upp ný aðferð þar sem frumur úr þrívíðri rækt voru leystar upp og lyfjaprófin gerð við tvívíð ræktunarskilyrði. Auk þess var skoðað hvaða áhrif æðaþel hefði á lyfjanæmi frumna í þessu prófi, og hvort þau áhrif héldust eftir að samrækt við æðaþelsfrumur væri hætt. Því voru sett upp þrjú ræktunarskilyrði: tvö með mismunandi langri samrækt með æðaþelsfrumum og einnig einrækt krabbameinsfrumulína. Niðurstöður sýndu að enginn marktækur munur var á lyfjanæmi frumulínanna eftir ræktunarskilyrðum og uppsetningin hentar vel til lyfjanæmisprófa. Að lokum var skoðað hvaða áhrif æðaþel hefur á genatjáningu briskrabbameinsfrumna, og hvort þau áhrif ganga til baka þegar æðaþel er tekið úr frumuræktinni. Niðurstöður RT-qPCR mælinga á völdum genum leiddu í ljós að æðaþel getur haft áhrif á genatjáningu briskrabbameinsfrumna, og að þessi áhrif ganga til baka að hluta til þegar frumum er endursáð án æðaþels. Heilt yfir sýna niðurstöður verkefnisins að notkun æðaþels til að ýta undir vöxt briskrabbameinsfrumna í þrívíðri rækt hentar vel þegar ætlunin er að nota krabbameinsfrumurnar í áframhaldandi rannsóknir, s.s. lyfjanæmisprófanir. Til framtíðar getur uppsetningin því verið góður kostir til að styðja við ræktun sjúklingasýna úr briskrabbameini í þrívíðu ræktunarumhverfi.
Source: Skemman
Author: Tryggvi Helmutsson
Language: Icelandic
Subfield: Oncology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6990631808
