Eftirlit foreldra með samfélagsmiðlanotkun unglinga
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Með stöðugri þróun snjalltækja og samfélagsmiðla hafa orðið til nýjar áskoranir fyrir foreldra. Unglingar eru upp til hópa virkir notendur á samfélagsmiðlum og eyða þeir miklum tíma á þeim vettvangi. Markmiðið með þessari ritgerð er að varpa ljósi á hvernig foreldraeftirliti með notkun unglinga á samfélagsmiðlum er háttað og hvers konar eftirliti fagaðilar mæla með að foreldrar beiti. Ritgerðin er hefðbundin heimildaritgerð. Rannsóknir hafa leitt í ljós að ýmis vandamál eru tengd notkun unglinga á samfélagsmiðlum. Unglingsárin eru tími breytinga og þroska, á þeim árum eru unglingar að prófa sig áfram í samskiptum. Ásamt því að vera reyna slíta sig að eitthverju leyti frá foreldrunum þá þurfa þau samt á stuðningi og eftirliti af þeirra hálfu að halda. Helstu niðurstöður benda til þess að foreldrar beita ýmsum aðferðum við eftirlit en fagaðilar ráðleggja foreldrum fyrst og fremst að nota eigið innsæi, efla samskipti við unglinginn og kenna unglingum að nota gagnrýna hugsun.
Source: Skemman
Author: Ólöf Sól Hallgrímsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6990768822
