Work

Effect of implementation of information systems on the wellbeing of employees

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Þekkt er í nútímasamfélagi að röskun verður í starfsemi stofnana og fyrirtækja þegar ný rafræn kerfi eru tekin í notkun. Rannsakandi hefur sjálfur tekið þátt í nokkrum kerfisinnleiðingum af slíku tagi og taldi áhugavert að skoða hvað það væri sem hefði áhrif á líðan starfsfólks við innleiðingu og einnig að skoða þá þætti sem hefðu áhrif á það hvernig til tækist með innleiðinguna. Ritgerð þessi fjallar um niðurstöður eigindlegrar rannsóknar sem gerð var á áhrifum innleiðingar nýs launa- og mannauðskerfis á líðan starfsfólks þeirra fyrirtækja sem innleiðingin beindist að. Við rannsóknina var notuð eigindleg aðferðafræði (qualitative methodology) sem felst í djúpviðtölum (in-depth interviews) rannsakanda við viðmælendur. Til þess að nálgast viðmælendur var stuðst við hliðverði (gatekeepers) og í framhaldi af því var snjóboltaaðferð (snowball method) notuð til þess að ná til fleiri viðmælenda. Viðmælendur voru sjö talsins. Fimm viðmælenda störfuðu hjá fyrirtækjum sem nýlega höfðu tekið upp nýtt launa- og mannauðskerfi og hlutverk þeirra var að vera í forystu um innleiðingu þessa kerfis innan fyrirtækisins. Einnig voru tekin tvö viðtöl við starfsfólk sem starfaði hjá söluaðila og studdi við innleiðinguna. Niðurstöður viðtalanna voru greindar með aðferðum grundaðrar kenningar (grounded theory) og voru teknar saman í nokkur meginþemu. Niðurstöðurnar sýndu að til þess að innleiðing kerfa takist vel er nauðsynlegt að undirbúa breytinguna vel, upplýsa og fræða starfsfólk sem á að vinna við kerfið. Góð eftirfylgni hafði einnig áhrif, jók öryggi starfsfólks og tryggði betri notkun á kerfinu. Öflug alhliða fræðsla, góður undirbúningur, hlýlegt viðmót og gott upplýsingaflæði er því lykillinn að vel heppnaðri innleiðingu.
Source: Skemman
Author: Anna Einarsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6990814734
Cites: 20
Cited by:
Related to: 10