Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi er lokaverkefni til BA-prófs í þroskaþjálfafræði við Háskóla Íslands. Í verkefninu er fjallað um einhverfu á fræðilegan hátt, skoðað hvað einhverfa er, fjallað um hvort orsakir séu þekktar og farið yfir einkenni. Þá eru greining, þjálfunarleiðir og meðferðarúrræði kynnt. Staða nemenda með einhverfu í grunnskólum er skoðuð og hvaða möguleikar standa þeim til boða, einkum út frá lagaumhverfi, umhverfisþáttum og hindrunum. Þá er fjallað um skóla án aðgreiningar og starfi þroskaþjálfa í almennum grunnskólum lýst stuttlega. Helstu niðurstöður eru að breytt viðhorf og skilningur á að umhverfið gegni veigamiklu hlutverki fyrir þátttöku og velfarnað einstaklinga með einhverfu í samfélaginu hefur orðið til aukinnar þekkingar á einhverfu. Greiningar á einhverfu, ásamt þjálfunar- og meðferðarúrræðum hafa tekið framförum, auk þess sem mikilvægi snemmtækrar íhlutunar hefur sýnt sig. Þá hefur sífellt skýrst betur að ýmsir fylgifiskar einhverfu, svo sem óhefðbundin skynúrvinnsla og skerðing í félagslegum samskiptum, verða til þess að samfélagsþátttaka einstaklinga með einhverfu takmarkast. Menntun fyrir börn með einhverfu og skólaganga í skóla án aðgreiningar stuðlar að bættri færni og aukinni þátttöku í samfélaginu, ásamt félagslegum ávinningi. Þar virðast gæði kennslu, samskipti við aðra nemendur og ekki síst færni þess aðila sem annast þjálfunina og kennsluna gegna veigamiklu hlutverki.
Source: Skemman
Author: Hildur Júlíusdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6990815689
