„Ég held hún gæti verið betri.“ Samvinna barnaverndaryfirvalda og ungbarnaverndar
Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í samskipti milli stofnana sem báðar hafa með velferð barna að gera. Í fyrsta lagi var sjónum beint að viðhorfi starfsmanna barnaverndaryfirvalda og ungbarnaverndar til gagnkvæms samstarfs. Í öðru lagi að fá innsýn í samskipti á milli þessara stofnana í tengslum við mál sem ungbarnaeftirlitið tilkynnir til barnaverndaryfirvalda. Þá var markmiðið að skoða hvort einhverjar hindranir væru í vegi fyrir samstarfinu og hvaða leiðir starfsfólk telur að hægt sé að fara til að bæta samskiptin enn frekar. Rannsóknin var unnin með blandaðri aðferð. Stuðst var við eigindleg viðtöl og innihaldsgreiningu fyrirliggjandi gagna. Viðmælendur voru 6 talsins, þrír barnaverndarstarfsmenn, einn félagsráðgjafi á heilsugæslu og tveir hjúkrunarfræðingar í ungbarnavernd á heilsugæslu. Innihaldsgreining gagna fór fram hjá Barnavernd Reykjavíkur á tilkynningum sem höfðu borist til þeirra frá ungbarnavernd árið 2013 fyrir börn á aldrinum 0-5 ára. Niðurstöður rannsóknar sýndu að samvinna milli barnaverndaryfirvalda og ungbarnaverndar er lítil. Samvinnan fólst aðallega í því að ungbarnaverndin veitir upplýsingar til barnaverndaryfirvalda þegar leitast var eftir upplýsingum varðandi könnun máls. Að mati viðmælenda var talin þörf á aukinni samvinnu milli barnaverndaryfirvalda og ungbarnaverndar. Niðurstöður leiddu einnig í ljós að fáar tilkynningar hafa borist frá ungbarnavernd til barnaverndaryfirvalda. \n \nLykilorð: Barnaverndaryfirvöld, ungbarnavernd, samvinna, misbrestur í uppeldi og aðbúnaði.
Source: Skemman
Author: Ólafía Helgadóttir 1972
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Welfare and Adoption
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6990822948
