Er kynferðisofbeldi undirliggjandi þáttur í tengslum áfengisneyslu og kynhegðunar við lífsánægju? : megindleg rannsókn á kynferðisofbeldi, áfengisneyslu og kynhegðun \nunglinga í 10. bekk á Íslandi árið 2014
Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Lífsánægja snýr að því hversu vel einstaklingi líkar við líf sitt og hvernig hann skynjar \nlífssánægju sína sem getur verið lykillinn að skilningi okkar á líkamlegri og andlegri heilsu þeirra. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvort kynferðisofbeldi gæti verið \nundirliggjandi þáttur í tengslunum milli áfengisneyslu og minni lífsánægju annars vegar og samfara og minni lífsánægju hins vegar. Rannsóknin var unnin upp úr gögnum alþjóðlegrar \nrannsóknar, Heilsa og lífskjör skólanema (Health Behavior in School-Aged Children; HBSC). Þátttakendur voru 3.618 talsins og voru grunnskólanemendur í 10. bekk íslenskra grunnskóla veturinn 2013/2014. Lífsánægja unglinganna var mæld á lífsánægjustiga Cantril þar sem niðurstöður sýndu að lífsánægja þátttakenda hafi verið almennt góð. Notast var við fjölbreytu aðhvarfsgreiningu til að ákvarða tengsl lífsánægju við áfengisneyslu, samfarir og kynferðisofbeldi. Niðurstður leiddu í ljós að tengsl voru milli áfengisneyslu og minni lífsánægju bæði hjá stúlkum og drengjum. Einnig leiddu niðurstöður í ljós að tengsl voru á milli þeirra sem byrjaðir voru að hafa samfarir og minni lífsánægju hjá stúlkum en ekki minni lífsánægju hjá drengjum. Þegar stjórnað var fyrir kynferðisofbeldi kom í ljós að sú breyta skýrði samband stúlkna og samfara og sýndi í raun að hægt er að skýra sambandið milli samfara og lífsánægju með því hvort stúlkur hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi. Því má segja, samkvæmt þessum niðurstöðum að kynferðisofbeldi skýri sambandið milli samfara og minni lífsánægju hjá stúlkum en það að hafa haft samfarir virðist ekki hafa áhrif. \nLykilorð: Lífsánægja, unglingar, samfarir, kynferðisofbeldi, áfengisdrykkja.
Source: Skemman
Authors: Guðrún Kristín Blöndal 1976, Helga Júlíusdóttir 1977, Telma Brimdís Þorleifsdóttir 1979
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Topic: Child Abuse and Trauma
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Keyword: life satisfaction
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6990883087
