Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Viðfangsefni verkefnisins er tölvuleikjaspilun íslenskra ungmenna og jákvæð sem og neikvæð áhrif sem sú iðja getur hugsanlega haft í för með sér. Tilgangur verkefnisins er að fjalla um þessi áhrif og hvað starfsfólk sem vinnur með ungu fólki á vettvangi frítímans getur gert til þess að auka jákvæðu áhrifin en draga úr þeim neikvæðu. Neikvæð áhrif óhóflegrar tölvunotkunnar geta leitt til fjölþætts vanda eins og félagslegrar einangrunnar. Leitað er svara við spurningunni hvað starfsfólk félagsmiðstöðva geti gert til að sporna gegn félagslegri einangrun í gegnum rafrænt samfélag? Nýttar eru innlendar og erlendar heimildir til að veita yfirsýn á áhrif tölvuleikjaspilunnar. Niðurstöður sýna að samskipti í rafrænum samfélögum getur haft jákvæð áhrif á einstaklinga rétt eins og önnur mannleg samskipti í raunheimum. Aftur á móti geta áhrifin einnig verið neikvæð og þá sérstaklega að mannleg samskipti verði lakari hjá tilteknum einstaklingum. Mikilvægt er að leiðtogar og fagfólk sem vinna með ungmennum séu meðvituð um áhrifin sem tölvuleikjaspilun getur haft hvort sem það er mikil spilun eða lítil og allt þar á milli. Viðbúið þarf að vera að takast á við þau vandamál sem hugsanlega geta komið upp og þá verður vonandi hægt að hjálpa þeim ungmennum sem á stuðningi þurfa að halda og stuðla að því að skila þeim sem heilbrigðum og virkum einstaklingum út í samfélagið. Tilgangur verkefnisins er að sýna fram á leiðir sem starfsfólk félagsmiðstöðva getur nýtt til að ná til unglinga á jaðrinum og þá hugsanlega félagslega einangraðra unglinga eða þeirra sem sýna áhættuhegðun. Sértækt hópastarf í formi rafræns samfélags sem nær til unglinga gæti haft jákvæð félagsleg áhrif, unglingar stígi út fyrir þægindaramma heimilisins og sæki félagsmiðstöðina sína. Helstu niðurstöður sýna að spilun tölvuleikja getur haft jákvæð og neikvæð áhrif. Hægt er að mynda félagsleg tengsl í gegnum tölvuleikjaspilun við einstaklinga sem spila sama tölvuleik eða tilheyra sama rafræna samfélagi. Þetta er ekki einskorðað við tölvuleiki því að snjallsíma- og samfélagsmiðlanotkun getur alveg eins heyrt undir þetta. Of mikil tölvuleikjaspilun getur þó aukið félagslega einangrun en ein og sér er hún ekki nóg til þess. Félagslegt umhverfi þarf einnig að bregðast og ákveðin persónueinkenni að vera til staðar. Ef þessir þrír þættir eru allir til staðar þá er mögulegt að tölvuleikjaspilun þróist út í fíkn. Tölvuleikjaspilun gaf mér góð félagsleg tengsl sem ég rækta enn þann dag í dag og það að geta sótt félagsmiðstöð í gegnum tölvu heima hjá sér er svo dýrmætt. Starfsfólk félagsmiðstöðva getur heldur betur blásið til sóknar í þessum málum með aðstoð rafræns samfélags.
Source: Skemman
Author: Gísli Geir Gíslason
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991147875
