Work

Fyrirburar og þarfir foreldra þeirra

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi er fræðileg samantekt á þörfum foreldra fyrirbura og hvernig þeim þörfum er mætt af heilbrigðisstarfsfólki og öðrum fagaðilum. Einnig er skoðuð tíðni fyrirbura fæðinga sem og andlát barna fyrir og eftir fæðingu hérlendis samanborðið við England/Wales. Mikil vitundarvakning hefur orðið á þörfum foreldra fyrirbura síðustu ár og hafa rannsóknir sýnt fram á að þegar þörfum þeirra er mætt skilar það sér í betri langtímaárangri tengt tengslamyndun og foreldrahæfni og minnkar kvíða og streitu foreldra. Helstu niðurstöður rannsókna sýndu fram á að þarfir foreldra eru margskonar og misjafnt er hvernig þeim þörfum er mætt en mikilvægt er að veita foreldrum fyrirbura stuðning og upplýsingar. Ísland stendur vel þegar kemur að heilsu nýbura samanborið við England/Wales og má áætla að það sé vegna aukinnar tækni og framfara í meðferð nýbura sem og þjónustu sem í boði er hérlendis fyrir þennan hóp einstaklinga.
Source: Skemman
Author: Dagrún Líf Valgeirsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Demography
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991244779
Cites: 23
Cited by:
Related to: 10