Gagnsemi styrktarþjálfunar fyrir spretthlaupara : áhrif styrktarþjálfunar á hraða spretthlaupara og forvarnargildi gagnvart meiðslum
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur þessa meistaraverkefnis var að kanna gagnsemi og áhrif styrktarþjálfunar út frá hópi viðmælenda með reynslu af þjálfun spretthlaupara sem sumir hafa náð eftirtektarverðum árangri hér innanlands. Í framhaldi af viðtölunum var farið í gegnum ritrýndar greinar um áhrif styrktarþjálfunar á spretthlaup til þess að styðja við þær upplýsingar og fullyrðingar sem komu fram í viðtölunum. Við vinnslu ritgerðarinnar var stuðst við hálfstöðluð viðtöl þar sem tekin voru viðtöl við sex sérfróða einstaklinga á sviði spretthlaupsþjálfunar. Markmiðið var að kanna þær þjálfunaraðferðir og æfingar sem viðmælendur notuðust við í styrktarþjálfun fyrir spretthlaupara og gagnsemi þeirra. Viðtölin voru rituð niður og notast var við tvö meginþemu út frá þeim: \n1)\tHver er mikilvægasti ávinningur styrktarþjálfunar á afkastagetu spretthlaupara? \n2)\tTelja spretthlaupsþjálfarar að styrktarþjálfun sé fyrirbyggjandi og gagnleg leið til að draga úr tíðni meiðsla hjá spretthlaupurum? \nHelstu niðurstöður viðmælenda voru að sérhæfð styrktarþjálfun gæti gert spretthlaupara hraðari og jafnframt bætt árangur þeirra í keppni, en flestir viðmælendur töldu það vera megintilgang styrktarþjálfunar. Flestir viðmælendur voru sammála um að styrktarþjálfun gæti minnkað líkur á meiðslum. Uppbygging og áherslur styrktaræfinga hjá þjálfurum voru að mörgu leyti keimlíkar, þær innihéldu ólympískar lyftingar, ótal útfærslur af hnébeygjum, réttstöðu, mjaðmaréttu og fleiri æfingar. Þær ritrýndu greinar um áhrif styrktarþjálfunar sem byggðar eru á rannsóknum á samanburðarhópum sýndu fram á að áhersla í styrktarþjálfun á mjaðmaréttu, kraftvendu og hnébeygjur skiluðu auknum hraða í spretthlaupum. \nViðmælendur töluðu einnig um að þjálfunin og æfing á brautinni væri meginatriði þjálfunar en síðan kæmi styrktarþjálfun. Allir þessir mikilvægu þættir þurfa að vera fyrir hendi til að ná sem mestum árangri. Lyftingar geta bætt kraftmyndun líkamans, sem síðan skilar auknum spyrnukrafti og þannig hraðari fótahreyfingu. Mikilvægt er að byggja styrk í kringum mjöðm, hné og ökkla. Það sem kom mest á óvart var mikil áhersla viðmælenda á að styrktarþjálfunin væri góð meiðslaforvörn. Það vakti einnig athygli að munur á sveiflutíma fóta, snertitíðni fótar á braut og tíðni skrefa skildi að þá sem náðu framúrskarandi árangri og hinna.
Source: Skemman
Author: Bjarni Páll Pálsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991270307
