Work

Forprófun á nýju málþroskaprófi, Málfærni eldri barna, fyrir 4-6 ára börn. Merkingarfræði

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Talmeinafræðingar hafa sérhæft sig í tali og máli. Þegar frávik kemur í ljós hjá börnum geta þeir gripið inn í og reynt að aðstoða viðkomandi á því sviði sem frávikið birtist. Til þess er gott að notast við málþroskapróf en málþroskapróf sýna hvar veikleikar og styrkleikar barna liggja í málinu og gefa þannig skýra mynd af því hvort þörf sé á að grípa inn í. Almennt er það talið betra að búa til málþroskapróf fyrir íslensk börn frá grunni sem eru samin með þeirra samfélag í huga og bera þau saman við jafningja með íslenskum viðmiðum en ekki að þýða og staðfæra erlend próf. Máltaka barna á íslensku er ekki eins og máltaka t.d. enskra barna að því leyti að íslenska er málfræðilegt tungumál og orðin sem íslensk börn þekkja eru ekki endilega þau sömu og tilheyra orðaforða barna í öðrum löndum. Þess vegna þarf að prófa önnur orð og atriði. Í forprófun þessa íslenska málþroskaprófs voru orðin í merkingarfræðihlutanum valin úr málsýnabanka Jóhönnu Einarsdóttur sem gefa raunhæfa mynd af orðnotkun íslenskra barna. \nÞátttakendur í forprófuninni voru 100 íslensk leikskólabörn á aldrinum 4;0 – 6;0 ára. Úrlausnum var skipt í þrjú aldursbil; 4;0 – 4;3, 4;10 – 5;1 og 5;8 – 5;11, til að gera samanburð á aldri mögulegan. Niðurstöður sýndu hvaða atriði voru aldursgreinandi, með góða fylgni, góða þyngd og með góðan áreiðanleika og út frá þeim var hægt að velja atriði sem hægt er að nota í áframhaldandi þróun prófs sem gengur undir vinnuheitinu Málfærni eldri barna (MEB). Þá sýndu niðurstöðurnar engan marktækan mun á getu hópa eftir kyni. Menntun móður hafði eingöngu marktæka fylgni í einum aldurshópi við heildarstigafjölda þátttakenda. \nNiðurstöður þessar munu nýtast í áframhaldandi þróun málþroskaprófsins MEB. Þær gefa mikilvægar upplýsingar um orðaforða bæði skilnings og tjáningar hjá börnum á aldrinum fjögurra til sex ára. Þetta er í fyrsta skipti sem hugtakaþekking barna á þessum aldri er athuguð sérstaklega. Auk þess er fjöldi rannsókna um orðskilning íslenskra barna takmarkaður en þessi rannsókn gefur því meiri innsýn í þann heim. Rannsókn þessi kemur vonandi einnig að gagni sem grunnur að viðmiðasöfnun aldursbundins orðaforða barna. Vonandi stuðlar hún einnig að frekari rannsóknum á máli íslenskra barna og þá m.a. með forspárgildi náms og lesturs í huga.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991286538
Cites: 41
Cited by: 1
Related to: 10