Genatjáning og björgun galla í vænglögun í ávaxtaflugunni Drosophila melanogaster
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Stjórnun genatjáningar brúar bilið á milli arfgerðar og svipgerðar og hefur lengi verið vitað að breytileiki í henni tengist fjölbreytni innan og milli tegunda. Hún er ómissandi fyrir eðlilega þroskun og lífeðlisfræðilega ferla í fjölfruma lífverum. Prótínraðir, eins og í umritunarþáttum, eru betur varðveittar en stjórnraðir gena, en hversu stöðug eru stjórnkerfi gena í þróun? Til þess að auka skilning okkar á hvernig genastjórnunarkerfi þróast, voru áhrif vefja-sérhæfðra stökkbreytinga í ávaxtaflugunni Drosophila melanogaster rannsökuð, í stofnum sem höfðu gengið í gegnum gervival fyrir uppbót á gallanum sem stökkbreytingin olli. Þremur alvarlegum stökkbreytingum í genunum vestigial, net og rhomboid var hvorri um sig æxlað inn í villtan stofn, sem leiddi til óeðlilegra vængja. Þeim stofnum var skipt upp, og þeir meðhöndlaðir annars vegar með uppbótarvali (þrjár endurtekningar, valið fyrir villigerðar væng) og hins vegar viðmiðunarstofn, með sömu stofnstærð og hinir (þrjár endurtekningar, þar vann náttúrulegt val gegn neikvæðum áhrifum stökkbreytingarinnar). Gervivalið leiddi til eðlilegrar vængsvipgerðar, en engin uppbót var í viðmiðunarhópunum. Í þessari rannsókn var spurt hvernig áhrif stökkbreytingarnar höfðu á vefjasérhæfða umritun í flugunum? Þar að auki var kannað hvort og hvaða þættir í umritunarmengi flugnanna tengdust væng-björguninni? Í því skyni var mRNA frá vængdiskum flugnanna raðgreint á Illumina HiSeq 2500, bútum raðað á erfðamengi D. melanogaster og tjáning greind með Kallisto, STAR – htseq-count, og DESeq2. Samræmi var milli svipfarsbreytinga og breytinga á umritun, þar sem stökkbreytingin í vestigial raskaði væng og umritun mest. Uppbótarvalið í vestigial stofnunum leiddi til tjáningarbreytinga í mörg hundruð genum. Hluti þeirra gena hafði öðlast uppbót á umritun, þar sem tjáningin færðist að villigerð. Þetta var rakið til uppbótar á tjáningu vestigial gensins, í öllum stofnunum. Líklegast er að breytingar á tjáningu eða í virkni þátta eða ferla ofar vestigial í genastjórnunarkerfinu, beri ábyrgð á uppbótinni. Sumar tjáningarbreytingar voru sameiginlegar öllum stofnum, en aðrar sérhæfðar fyrir vissa stofna. Í heild staðfesta niðurstöðurnar samband umritunar og svipgerðar lífvera. Enn fremur, að útlitslegum galla var hægt að bjarga með uppbót á umritun sama gensins, þótt orsakirnar séu enn óskilgreindar.
Source: Skemman
Author: Dagný Ásta Rúnarsdóttir 1993
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Molecular Biology
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
Funder: Rannís
OpenAlex ID: W6991375101
