Handbók fyrir börn og unglinga í rafíþróttum : mikilvægi heilsu og heilsueflingar samhliða íþróttinni
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur verkefnisins var að útbúa handbók fyrir börn og unglinga sem stunda rafíþróttir þar sem áhersla væri lögð á hvatningu til heilsueflingar samhliða íþróttinni. Þar er markmiðið að fá þau til að hugleiða hve stóran þátt heilsa og vellíðan eiga í því að ná árangri í íþróttum almennt. Handbókin greinir frá mikilvægi þess að huga að andlegri og líkamlegri heilsu í rafíþróttum þar sem farið er yfir náin tengsl árangurs í íþróttinni samhliða góðu andlegu og líkamlegu jafnvægi. Meðal annars er farið yfir þrjár grunnstoðir heilsu, hver æskileg líkamleg hreyfing er fyrir börn og unglinga til að viðhalda heilbrigði samkvæmt ráðleggingum, hvaða heilsueflandi þætti lögð er áhersla á hjá rafíþróttaiðkendum bæði fyrir æfingar og keppnir og hver framtíðaráform íþróttarinnar eru. Vonast er til þess að handbókin geti nýst nýjum iðkendum rafíþrótta sem og þeim sem hafa stundað íþróttina til lengri tíma, og að lestur handbókarinnar skili sér í auknum drifkrafti barna og unglina til að gera enn betur í því að huga að heilsu og heilsueflingu samhliða íþróttinni. Þannig er mögulega hægt að hafa áhrif á framtíðaráform íþróttarinnar þar sem heilsa og vellíðan er höfð að leiðarljósi.
Source: Skemman
Author: Adam Jarron
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991432747
