Greining á málþroska tvítyngdra leikskólabarna á Íslandi
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Í íslenskum leikskólum eru alls konar börn og tungumálaflóra þeirra getur verið mjög fjölbreytt. Markmiðið með þessari ritgerð er að kynna helstu málþroskapróf sem notuð eru í íslenskum leikskólum til þess að greina málþroska hjá tvítyngdum börnum. Málþroski eintyngdra barna var skoðaður og borinn saman við málþroska tvítyngdra barna. Athugað var hvort hægt væri að mæla málþroskann með því að meta hann í hvoru tungumáli fyrir sig og þannig áætla hver málþroskinn væri. Skoðaðar voru fyrri rannsóknir og skilgreiningar fræðimanna á málþroska og tvítyngi til að greina hvernig málþroski tvítyngdra er frábrugðinn málþroska eintyngdra barna. Eiginleikar og notkun málþroskaprófa voru síðan bornir saman við þá punkta sem þarf að uppfylla til þess að geta greint málþroska tvítyngdra barna. Í niðurstöðum var farið yfir hvernig greining á málþroska tvítyngdra barna fer fram og hvernig og hvort öll málþroskaprófin geta verið notuð fyrir tvítyngd börn. Með þessu er eftirfarandi rannsóknarspurningu svarað: „Hvernig fer greining á málþroska tvítyngdra leikskólabarna fram á Íslandi?“ Í umræðukaflanum er farið yfir þá hnökra sem prófin hafa og settar fram tillögur um hvernig hægt er að betrumbæta greiningu á málþroska tvítyngdra barna í framtíðinni.
Source: Skemman
Author: Alexandra Geraimova
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991461494
