Work

Góð upplýsingagjöf er lykillinn að árangri: Upplifun og reynsla stjórnenda af breytingum og upplýsingamiðlun á vinnustað

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Fyrirtæki og stofnanir þurfa í sífellt meira mæli að aðlaga sig að breyttum tímum og breytingum sem þeim fylgja. Í kjölfar þessa hefur starfsfólk kallað eftir opnari samskiptum og aukinni upplýsingagjöf. Í rannsókninni: Góð upplýsingagjöf er lykillinn að árangri, er leitast eftir því að skoða reynslu og upplifun stjórnenda á því hvernig upplýsingum er miðlað í breytingaferli og áskorunum sem því fylgir. Markmið rannsóknar var að fá innsýn inn í hlutverk stjórnenda þegar kemur að upplýsingamiðlun og samskiptum. Tekin voru viðtöl við tólf stjórnendur í fjórum samgöngufyrirtækjum á Íslandi. Viðtölin voru greind með fyrirbærafræðilegri nálgun sem er ein nálgun í eigindlegri aðferðarfræði. Í niðurstöðum rannsóknar komu fram fimm þemu en þau eru: Nýjar boðleiðir, virk upplýsingagjöf, mikilvægi undirbúnings, sýna skilning og stuðla að trausti. Við greiningu gagna komu í ljós áhugaverðar niðurstöður eins og breytt umhverfi í boðleiðum upplýsinga ásamt mikilvægi undirbúnings og upplýsingamiðlunar í breytingaferlum. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að áhersla á upplýsingaflæði hefur aukist, auk þess sem traust og skilningur stjórnenda skipti miklu máli þegar kemur að breytingum á vinnustöðum.
Source: Skemman
Author: Laufey Bjarnadóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991496289
Cites: 15
Cited by:
Related to: 10