Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Ytri öndunarvélameðferð flytur súrefni og jákvæðan loftvegaþrýsting til sjúklings án ífarandi inngripa. Notkun ytri öndunarvélameðferðar fer vaxandi og er nú ein af lykilmeðferðum fyrir öndunarbilun. Hjúkrunarviðfangsefni sjúklinga í ytri öndunarvélameðferð eru margþætt en hlutverk hjúkrunarfræðinga er að meta hjúkrunarþarfir sjúklinga, skrá hjúkrunarþarfir og setja fram viðeigandi hjúkrunaráætlun með það að markmiði að stuðla að bata og bættri líðan sjúklinga. \nTilgangur: Tilgangur þessa verkefnis var tvíþættur: a) að greina og samþætta rannsóknarniðurstöður á ytri öndunarvélameðferð og greina helstu viðfangsefni hjúkrunar og það sem henni tengist, út frá núverandi þekkingu og væntingum og b) að kanna samsvörun alþjóðahjúkrunarflokkunarkerfisins ICNP við hjúkrunargreiningar og hjúkrunarmeðferðir fyrir sjúklinga í ytri öndunarvélameðferð. \nAðferð: Framkvæmd var fræðileg samantekt um hjúkrun sjúklinga í ytri öndunarvélameðferð. Rannsóknarspurningar og leitarstrengur var þróaður út frá PICOTS viðmiðum. Gagnasöfnun fór fram í Pubmed, Cinahl og Web of Science. Ferlið sett upp í PRISMA flæðirit. Viðfangsefni hjúkrunar voru sett fram út frá samantektinni og þeim varpað yfir í ICNP. Notast var við gagnagrunn ICNP frá 2022. Við vörpun var notast við fjögur þrep, þar sem 1=fullkomin vörpun og 4=engin samsvörun, til að meta samræmingu hjúkrunarviðfangsefna við ICNP. \nNiðurstöður: Helstu hjúkrunarviðfangsefni út frá heimildarleit voru mat og eftirlit með öndun, eftirlit með ytri öndunarvél, mat og eftirlit með blóðaflfræðilegum gildum, mat á meðvitundarstigi, fyrirbygging þrýstingsskaða, mat á næringarástandi ásamt því að sinna andlegum þörfum sjúklinga. Sett voru fram átta viðfangsefni, 30 hjúkrunargreiningar og 53 hjúkrunarmeðferðir. Fullkomin vörpun og merkingarleg vörpun hjúkrunargreininga var 80% (n=24) og engin samsvörun við ICNP var 3% (n=1). Af heildarfjölda hjúkrunarmeðferða var fullkomin vörpun og merkingarleg vörpun 49% (n=26) og engin samsvörun við ICNP 32% (n=17). \nÁlyktun: Hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki í ytri öndunarvélameðferð þar sem kerfisbundið mat og heildrænt eftirlit skipta miklu máli til að koma í veg fyrir fylgikvilla og til að stuðla að bættri líðan sjúklinga. Þörf er á frekari athugunarrannsóknum þar sem litið er til heildrænnar hjúkrunar sjúklinga í ytri öndunarvélameðferð og skrásett öll hjúkrunarviðfangsefni sem eru framkvæmd. Einnig er þörf á að „ytri öndunarvélameðferð” sé innleidd í ICNP flokkunarkerfið og að klínískar leiðbeiningar fyrir heilbrigðisstarfsfólk séu endurnýjaðar.
Source: Skemman
Authors: Aníta Ýr Ómarsdóttir, Fanney Sif Torfadóttir, Heiða Mist Kristjánsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Research and Theory
Field: Nursing
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991556592
