Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Þetta verkefni er lokaverkefni til BA-gráðu í tómstunda-og félagsmálafræði við Háskóla Íslands í febrúar 2018. Verkefnið er tvíþætt og skiptist í barnabókina Jói og Gunnar í heimi tölvuleikjanna og greinagerð. Markmið barnabókarinnar er að aðstoða foreldra við að upplýsa börn sín á aldrinum fimm til átta ára um mikilvægi góðrar snjalltækjanotkunar. Samhliða því að bókin sé verkfæri sem foreldrar geta nýtt sér, er hún einnig ætluð sem vitundarvakning til foreldra þar sem tæknin er stór partur af okkar daglega lífi. \nBókin fjallar um tvo félaga sem una því að leika sér úti öllum stundum þegar færi gefst. Þar til einn daginn þegar annar strákurinn fær leikjatölvu í afmælisgjöf hverfur hann með dularfullum hætti. Hinn strákurinn reynir allt sem í hans valdi stendur til að bjarga honum og lenda þeir í ýmsum uppákomum á leið þeirra heim. \nÍ greinagerðinni verður farið yfir helstu þroskastig barna, skjánotkun barna og unglinga ásamt þeim áhrifum sem notkunin hefur í för með sér.
Source: Skemman
Author: Inga Björk Matthíasdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991569915
