Work

Hvað á að gera við afa? Tækifæri Íslands í velferðartækni

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Þessi heimildaritgerð er lokaverkefni til BA gráðu í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Auknar lífslíkur og sífellt eldri þjóð, skapar ný verkefni á sviði öldrunarmála. Öll erum við að eldast ekki bara sem þjóð, því ætti þessi ritgerð að geta gagnast okkur öllum. Það er þó mín von að hún reynist þeim er vinna í öldrunarmálum á Íslandi sérstaklega vel. Rannsóknarspurningunum sem leitast verður eftir að svara í ritgerð þessari er: hvernig getur Ísland nýtt sér velferðartækni til að ná settum markmiðum hvað varðar öldrunarmál? og hverjar eru helstu hindranir Íslands í notkun velferðartækni í öldrunarþjónustu? \nFarið verður yfir íslensk lög, stefnumarkandi áherslur í málefnum aldraðra sem og velferðartækni verður gerð skil. \nNiðurstöðurnar sýna fram á að velferðartækni á borð við fjarfundabúnað, rafrænt eftirlit og velferðartækni á sviði hreyfingar eru allt mikilvægir liðir í því að ná tilsettum markmiðum hvað varðar stefnur og lög í málum og málefnum tengt öldrun. Starfsmenn þurfa meiri menntun og þjálfun á þessu sviði, stofnanir þurfi því sömuleiðis að taka stakkaskiptum. Til að ná settum markmiðum í öldrunarmálum á Íslandi þarf að útrýma gráum svæðum sem skapast geta í málaflokk aldraðra og ákveða þarf hvar ábyrgð á einstaka verkþáttum liggur.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991571007
Cites: 29
Cited by:
Related to: 10