Work

Hinir þöglu þolendur þunglyndis : upplifun og bjargráð aðstandenda einstaklinga með þunglyndi

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Þunglyndi er sjúkdómur sem getur haft gríðarlegar neikvæðar afleiðingar í för með sér, ekki aðeins fyrir þann sem er með sjúkdóminn, heldur einnig fyrir þá sem standa honum næst. Meginmarkmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á upplifun og líðan aðstandenda einstaklinga með þunglyndi, sem og hvaða bjargráð þeir nýta sér, með það að leiðarljósi að auka þekkingu á stöðu þeirra. Margar rannsóknir hafa kannað áhrif þunglyndis á einstaklinga sem bera sjúkdóminn en síður hefur sjónum verið beint að upplifun aðstandenda þunglyndra einstaklinga. Sett var fram eftirfarandi rannsóknarspurning: Hver er upplifun og líðan aðstandenda einstaklinga með þunglyndi og hvaða bjargráð hafa þeir nýtt sér? Rannsókn þessi er byggð á eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem notast er við tilgangsúrtak. Gagna var aflað með hálf opnum viðtölum við fjóra aðstandendur einstaklinga með þunglyndi, nánara tiltekið maka þeirra. Niðurstöður sýndu fram á neikvæða upplifun aðstandenda sem fólst í neikvæðum tilfinningum, tengslarofi, meðvirkni og aukinni byrði aðstandenda. Bjargráð voru í formi forðunar þar sem aðstandendur nýttu sér ýmsar aðferðir til þess að láta sér líða betur og til að forðast streituvaldandi aðstæður. Einnig beittu aðstandendur nálgunar bjargráðum í formi fræðslu, stuðnings og annarra úrræða sem í boði voru fyrir aðstandendur.
Source: Skemman
Author: Amanda Ásdís Jóhannsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991576555
Cites: 54
Cited by:
Related to: 10