Hvatning vísindamanna á Landspítalanum: Hvað er það sem hvetur vísindamenn Landspítala áfram í rannsóknum og hvernig má betur koma til móts við vísindamenn
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Rannsókn þessi fjallar um hvatningu vísindamanna á Landspítala og viðhorf þeirra til vísindastarfs. Landspítali er stærsti spítali landsins og hefur það lögbundna hlutverk að sinna vísindum. Rannsóknarstarf hefur átt undir högg að sækja en samkvæmt skýrslu Nordforsk hefur verulega dregið úr tilvitnunum í rannsóknir á vegum spítalans. Hver svo sem skýringin kann að vera má draga þá ályktun að spítalinn hafi ekki náð að styðja nógu vel við vísindamenn og það vísindastarf sem stundað er. Markmið rannsóknar var að kanna hvað það er sem hvetur vísindamenn Landspítalans áfram í rannsóknum og fá hugmyndir af því hvernig betur má koma til móts við þennan hóp. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð og stuðst við hálfopin viðtalsramma. Rætt var við forsvarsmenn öflugra rannsóknarhópa innan Landspítala og yngri vísindamenn einnig til að öðlast breiðari grunn og betri yfirsýn yfir breytileika hópsins. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að viðmælendur séu drifnir áfram af innri hvötum og upplifi gleði og ánægju af rannsóknum. Viðmælendur virðast eiga það sameiginlegt að vilja leggja sitt af mörkum til samfélagsins og þá von að geta hjálpað örðum. Þeim finnst starfið sitt mikilvægt en oft á tíðum vanmetið. Viðmælendum finnst hvetjandi að starfa í góðu teymi og stuðningur samstarfsaðila og yfirmanna er nauðsynlegur. Umhverfið og aðstæður skipta máli og vildu viðmælendur almennt sjá aukna áherslu á vísindin inn í starfsemi spítalans. Skilgreindur tími til vísinda og sameiginleg aðstaða fyrir rannsakendur voru talin atriði sem þarfnast bóta. Enn fremur bentu viðmælendur á að upplýsingaflæðið á spítalanum væri ekki nógu gott og bæta mætti þjónustuna sem spítalinn veitir vísindamönnum. Af þessu að dæma ætti spítalinn að leggja áherslu á umhverfi sem stuðlar að innri hvatningu til að auka vísindavirknina. Skapa þyrfti sameiginlegt starfsrými fyrir rannsakendur og búa þannig um hnútana að samskipti við stjórnendur og samstarfsaðila verði sem best getur. Loks væri mikilvægt að efla upplýsingagjöf í tengslum við vísindastarfið og reyna eftir fremsta megni að koma á skilgreindum tíma til vísindastarfa sem svo myndi stuðla að aukinni vísindamenningu og virkni.
Source: Skemman
Author: Eyrún Steinsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991581744
