Work

Hreyfimynstur í neðri útlimum við framkvæmd Y-jafnvægisprófs á meðal íslenskra knattspyrnuleikmanna

Year: 2015
Type: article
Abstract: Meiðsli í íþróttum eru algeng og er talið að tíðni þeirra sé um 23,7 á móti 1000 og að flest meiðsli séu í neðri útlimum (Baarveld, Visser, Kollen, & Backx, 2011). Þegar kynin eru borin saman virð­ ast konur hafa öðruvísi hreyfimynstur og styrk miðað við karlmenn og er t.d. krossbandameiðsli um 4-6 sinnum algengari hjá konum en hjá körlum sem stunda sömu íþróttagrein (Hewett, Myer, Ford, et al., 2005; Mendiguchia, Ford, Quatman, Alentorn-Geli, & Hewett, 2011). Það eru ýmsir þættir sem geta haft áhrif á tíðni meiðsla. Saga um fyrri meiðsli virðist vera helsti þátturinn sem spáir fyrir um meiðsli í neðri útlimum (Mottram & Comerford, 2008). Flestir vilja þó meina að það séu bæði innri og ytri þættir sem spila inn í þegar um meiðsli er að ræða (Bahr & Holme, 2003; Meeuwisse, Emery, Tyreman, & Hagel, 2007; Meeuwisse, 1994). Ójafnvægi á milli hliða sem og stífleiki í ökklalið getur haft áhrif á tíðni meiðsla (Croisier, Ganteaume, Binet, Genty, & Ferret, 2008; Engebretsen, Myklebust, Holme, Engebretsen, & Bahr, 2010; Hewett, Myer, Ford, et al., 2005; Murphy, Connolly, & Beynnon, 2003; Macrum, Bell, Boling, Lewek, & Padua, 2012)
Author: Thelma Dís Ragnarsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991596998
FWCI:
Cites: 17
Cited by:
Related to: 10