Hjónabandssæla - Athugun á próffræðilegum eiginleikum matskvarða sem mæla ánægju í parsamböndum í íslensku úrtaki
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Í þessari rannsókn voru kannaðir próffræðilegir eiginleikar fimm matskvarða sem notaðir eru í íslenskri rannsókn á hamingju í samböndum. Kvarðarnir höfðu áður verið þýddir á íslensku og lagðir fyrir 221 manns í ákveðnum hverfum eða sveitafélögum á Íslandi. Kvarðarnir sem notaðir eru í áðurnefndri rannsókn eru Ástarskali Sternbergs (e. Sternberg‘s Triangular Love Scale) þróaður af Sternberg (1997), Aðgreining sjálfsins (e. Differentiation of Self Inventory-Revised) þróaður af Skowron og Schmitt (2003), Ánægja í samböndum (e. Couples Satisfaction Index-16) þróaður af Funk og Rogge (2007), Upplifun í nánum samböndum (e. The Experience in Close Relationships-Revised) þróaður af Fraley, Waller og Brennan (2000) og Virðing í samböndum (e. Respect Toward Partner Scale), Kvörðunum er ætlað að meta þá þætti sem taldir eru stuðla að hamingjusömu parsambandi. Þættirnir eru nánd, ástríða, skuldbinding, aðgreining sjálfsins, ánægja í samböndum, geðtengsl og virðing. Rannsóknin var gerð í þeim tilgangi að athuga próffræðilega eiginleika íslenskrar útgáfu kvarðanna. Framkvæmd var bæði hefðbundin atriðagreining samkvæmt klassíska próffræðilíkaninu og leitandi þáttagreining á svörum þátttakenda. Niðurstöður atriðagreiningar gefa meðal annars upplýsingar um eiginleika prófatriða og áreiðnaleika kvarðanna en niðurstöður þáttagreiningar sýna innri byggingu þeirra og að hvaða marki gögn endurspegla fræðilegan bakgrunn þeirra. Í megindráttum voru niðurstöður þær að flest atriði á kvörðunum fimm stóðust kröfur um próffræðilega eiginleika samkvæmt atriðagreiningu. Áreiðanleikastuðlar voru almennt mjög háir og svipaðir niðurstöðum erlendra rannsókna. Niðurstöður leitandi þáttagreiningar sýndu hinsvegar að þrír af fimm kvörðum hefðu svipaða þáttabyggingu og fram hefur komið í erlendum rannsóknum. Kvarðarnir CSI-16 og DSI-R reyndust aftur á móti hafa aðra þáttabyggingu í íslenska úrtakinu en fram hefur komið í erlendum rannsóknum. Faglega var staðið að þýðingu kvarðanna og enginn ástæða til að efast um gæði hennar. Val og stærð úrtaks getur hafa haft áhrif á stöðugleika þáttabyggingar en framtíðar rannsóknir munu væntanlega varpa skýrara ljósi á próffræðilega eiginleika íslenskrar útgáfu kvarðanna.
Source: Skemman
Author: Viktor Snær Rúnarsson 1996-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991632371
