Work

„Höfuðverkur eða heilaæxli?“ Fræðileg samantekt um heilsukvíða

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Áhyggjur af heilsufari eru eðlilegar og endurspegla eðli mannsins að vilja lifa og dafna. Þegar slíkar áhyggjur valda hamlandi ótta, þráhyggju og virkniskerðingu getur þó verið um heilsukvíða að ræða. Markmið með þessari fræðilegu samantekt (e. literature review) var að skoða sjúklingahóp, algengi, áhættuþætti, greiningarskilmerki og mælitæki til skimunar á heilsukvíða. Árangur meðferða var kannaður með áherslu á framtíðarmöguleika í hjúkrun auk þess að varpa ljósi á stöðu fyrirbærisins hérlendis. Algengi heilsukvíða er sambærilegt almennri kvíðaröskun, felmturröskun og áfallastreituröskun. Röskunin dreifist jafnt milli kynja og aldurshópa og er allt að fjórfalt algengari hjá einstaklingum með greinda sjúkdóma. Internetnotkun fylgir aðgengi að fjölbreyttum heilbrigðistengdum upplýsingum sem getur aukið á vanlíðan einstaklinga með heilsukvíða. Fræðimenn eru ósammála um skilgreiningu röskunarinnar og sjúkdómsflokkunarkerfum ber ekki saman um greiningarskilmerkin. Hefur þetta komið niður á framgangi og gæðum rannsókna og aftrað þekkingu og þróun á úrræðum. Rannsóknir hafa þó tekið við sér undanfarin ár og virðist fyrirbærið njóta vaxandi áhuga fræðimanna. Heilsukvíði hefur ekki enn verið rannsakaður hér á landi og því erfitt að leggja áreiðanlegt mat á stöðuna. Þegar litið er til framtíðar gætu hjúkrunarfræðingar gengt lykilhlutverki þegar kemur að skimun og meðferðum við heilsukvíða og með aukinni þekkingu væri æskilegt að þróa úrræði til að mæta þörfum þessa sjúklingahóps. Með viðeigandi meðferð má bæta líðan og virkni einstaklinga með heilsukvíða og draga úr kostnaði samfélagsins sem fylgir röskuninni.
Source: Skemman
Authors: Gígja Gylfadóttir 1991, Magnhildur Ósk Magnúsdóttir 1991
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991636801
Cites: 60
Cited by:
Related to: 10