Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Hreyfing hefur verið tengt við aukinni hæfni í skóla og við minni einkennum þunglyndis meðal unglinga. Það að þunglyndi sé tengt við hæfni í skóla, gæti verið að sambandið milli hreyfingar og hæfni í skóla sé til komin vegna þunglyndis. Þessi rannsókn skoðaði þessa tilgátu með því að setja skrefamæla inngrip á unglingana og með því að meta þunglyndi og hæfni í skóla fyrir og eftir inngrip. Þátttakendur voru 99, 15-17 ára unglingar frá tveimur framhaldsskólum í Reykjavík. Allir þátttakendur voru með lokaða skrefamæla í þrjá daga í grunnmælingu á hreyfingu. Meðan á 15 daga inngripstímanum stóð voru skrefamælarnir opnir og sendu þátttakendurnir fjölda skrefa á hverjum degi með textaskilaboðum til rannsóknarmanna. Þátttakendum var skipt eftir miðgildi í mikla (High_PA) og litla (Low_PA) hreyfingar hópa. Dreifigreining fyrir endurteknar mælingar sýndi fram á að eftir inngripið var High_PA með hærri meðaleinkunn heldur en Low_PA. Enginn munur var á milli hópanna í þunglyndi og var því sambandið milli hreyfingar og meðaleinkunnar ekki til komið vegna þunglyndis. Niðurstöðurnar benda á að aukin hreyfing hjá unglingum geti hækkað meðaleinkunn þeirra.
Source: Skemman
Author: Helga Gunnólfsdóttir 1986
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Topic: Physical Activity and Health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991638235
