Hvatning starfsmanna Hvassaleitisskóla og starfsmanna Marels
Year: 2011
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Efni þessarar ritgerðar er hvatning og sérstaklega er innri og ytri hvatning skoðuð með tilliti til ríkisstarfsmanna í Hvassaleitisskóla og starfsmanna í einkarekna fyrirtækinu Marel. Sýnt verður fram á að hvatning, sem er flókið og dularfullt fyrirbæri, sé einn af lykilþáttunum í árangursríkri stjórnun. Einnig verður sýnt fram á að talsverður viðhorfsmunur greinist meðal ríkisstarfsmanna og starfsmanna í einkarekstri gagnvart innri hvataþáttum annars vegar og ytri hvataþáttum hins vegar. \n \nAðalrannsóknarspurning ritgerðarinnar er þessi: Er munur á mikilvægi innri hvatningar og ytri hvatningar hjá starfsmönnum í Hvassaleitisskóla og starfsmönnum hjá einkarekna fyrirtækinu Marel? Undirspurningarnar eru tvær. Þær eru annars vegar: Telja ríkisstarfsmenn hjá Hvassaleitisskóla innri hvatningu mikilvægari en starfsmenn hjá einkarekna fyrirtækinu Marel? Og hins vegar: Telja starfsmenn hjá einkarekna fyrirtækinu Marel ytri hvatningu mikilvægari en ríkisstarfsmenn hjá Hvassaleitisskóla?
Source: Skemman
Author: Lára Hafliðadóttir 1987
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991664301
