Íslenskunám leikskólabarna með annað móðurmál : rýnt í aðferðir og áherslur r í leikskólastarfi
Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Viðfangsefni rannsóknarinnar er að kanna ólíkar nálganir og aðferðir í íslensku málörvunarstarfi fyrir tvítyngd leikskólabörn. Rannsóknin byggir á niðurstöðum fjölda innlendra og erlendra rannsókna sem sýna fram á að tvítyngd börn standa höllum fæti hvað varðar orðaforða, málskilning og máltjáningu þegar leikskólanámi lýkur. Sex hálfopin viðtöl voru tekin við sérkennslustjóra og skólastjóra þriggja leikskóla í Reykjavík. Einnig voru upplýsingar af heimasíðum leikskólanna notaðar til greiningar. Um eigindlega tilviksrannsókn er að ræða. Niðurstöður benda til þess að málörvunarstarf í leikskólum sé aðallega kennslumiðað en á öllum stöðum var reynt að láta aukalega tungumálakennslu fara fram í daglegu deildarstarfi. Viðmælendur lögðu mikla áherslu á að leggja inn fjölbreyttan orðaforða á margvíslegan hátt til að auðga málfærni barnanna. Það vakti sérstaklega athygli að sérkennslustjórarnir höfðu umsjón með hópi tvítyngdra barna í sínum skóla í öllum tilfellum sem kynnt eru í rannsókninni. Allir viðmælendur voru sammála um að nauðsynlegt væri að efla íslenska málfærni tvítyngdra barna. Engu að síður töldu þeir ekki að tvítyngi eitt og sér væri ástæða fyrir sérkennsluúrræði í hefðbundnum skilningi. Áherslurnar í málörvunarstarfi leikskólanna voru svipaðar en aðferðirnar ólíkar. Í leikskólanum með hæsta hlutfall erlendra barna var t.d. reynt að skapa námsumhverfi sem stuðlar aðallega að vellíðan barna til að auðvelda tungumálanámið. Í öðrum leikskóla fylgdu heimagerðar samskiptamöppur barninu heim og í skólann til að örva orðaforða á báðum tungumálum. Einnig var kannað hvernig leikskólarnir mátu stöðu barna í íslensku en sú þekking skiptir sköpum til að sérsníða nám eftir þörfum einstaklingsins. Í tveimur skólum var geta barna markvisst könnuð, en í þriðja skólanum fór matið fram á óformlegan hátt. Leikskólarnir vinna eftir ólíkum stefnum í málefnum tvítyngdra barna, en í rannsókninni er lögð megináhersla á að skoða þær aðferðir sem viðhafðar eru í hverjum skóla, án þess þó að bera þær endilega saman. Það er almennt samþykkt sjónarmið að fjölbreytt og markvisst tungumálaílag á yngri árum getur seinna haft langtímaáhrif á velgengni í lestrarnámi. Þar að auki má lesa úr niðurstöðunum að sameiginleg matsaðferð til að kanna stöðu barna í íslensku myndi auðvelda mótun námsskipulags fyrir starfsfólk leikskóla. Að lokum væri með því hægt að skapa viðmið og auka fræðilega þekkingu á því ferli sem börnin fara í gegnum þegar þau tileinka sér íslensku sem annað mál.
Source: Skemman
Author: Juliane Wilke
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Linguistics and Language
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6991930434
