Work

Kerfisbundin fræðileg samantekt á árangri flýtibatameðferðar við enduruppbyggingu á brjóstum með fríum flipa frá kvið: Hlutverk svæfingahjúkrunarfræðinga við framkvæmd flýtibatameðferðar

Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Flýtibatameðferð er fjölþætt meðferð skurðsjúklinga sem getur dregið úr fylgikvillum og stytt sjúkrahúsdvöl í kjölfar aðgerða. Flýtibatameðferð var fyrst skilgreind árið 1997 fyrir sjúklinga sem gengust undir ristilskurðaðgerðir. Síðan þá hefur flýtibatameðferð verið notuð við fjölda annarra aðgerða. Ekki er til samþykktur ferill fyrir flýtibatameðferð við enduruppbyggingu brjósta með fríum flipa frá kvið. Svæfingahjúkrunarfræðingar sinna mörgum þáttum flýtibatameðferðar og gegna því mikilvægu hlutverki við innleiðingu meðferðarinnar sem og í aðgerðarferlinu sjálfu.Tilgangur: Tilgangur þessa fræðilega yfirlits er að varpa ljósi á árangur flýtibatameðferðar hjá konum sem fara í enduruppbyggingu brjósta með fríum flipa frá kvið og hlutverk svæfinga-hjúkrunarfræðinga við framkvæmd flýtibatameðferðar hjá þessum sjúklingahópi. \nAðferðir: Gerð var kerfisbundin leit að rannsóknum í gagnagrunnunum PubMed, Scopus, Proquest og í sérhæfðum tímaritum, sem birtar voru á tímabilinu 2014-2020. Greinar voru skimaðar og gæði metin með viðurkenndum gátlistum og leiðbeiningum Joanna Briggs Institute (JBI). \nNiðurstöður: Átta rannsóknir með alls 1.616 þátttakendum uppfylltu inntökuskilyrði og gæðamat. Þátttakendur fengu ýmist flýtibatameðferð eða hefðbunda meðferð. Niðurstöður sýndu að lengd sjúkrahúslegu styttist marktækt hjá þeim sem fengu flýtibatameðferð miðað við þá sem fengu hefðbundna meðferð. Heildarnotkun morfinskyldra lyfja reyndist einnig minni eftir innleiðingu flýtibatameðferðar en enginn munur reyndist á tíðni fylgikvilla milli meðferðarhópa 30 til 90 dögum eftir aðgerð. Sjö þættir flýtibatameðferðar eru í verkahring svæfingarhjúkrunarfræðinga: Fyrirbyggjandi sýklalyfjagjöf, fyribyggjandi velgjuvarnarlyfjagjöf, verkjalyfjagjöf fyrir, í og eftir aðgerð, svæfingameðferðin, vökvameðferð og fyrirbygging ofkælingar. Ályktun: Með innleiðingu flýtibatameðferðar við enduruppbyggingu brjósta með fríum flipa, má stytta sjúkrahúslegu, minnka þörf fyrir morfínskyld lyf, bæta líðan og þannig draga úr kostnaði. Gera þarf frekari rannsóknir á andlegri og líkamlegri líðan sjúklinga í flýtibatameðferð og því hvaða þættir eru tengdir betri árangri. Svæfingahjúkrunarfræðingar eru í lykilhlutverki við innleiðingu og framkvæmd flýtibatameðerðar á skurðstofu. \n \nLykilorð: Flýtibatameðferð, enduruppbygging, frír flipi, smáæða, smáæða brjóstaaðgerðir, brjóstaaðgerðir.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Surgery
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6992040384
Cites: 65
Cited by:
Related to: 10