Kynlíf er ekkert grín! Kynfræðsla sem mæður veita unglingum
Year: 2005
Type: dissertation
Abstract: Tíðni kynsjúkdóma (t.d. klamydíu), fóstureyðinga og barneigna meðal ungs fólks er hærri hér á landi en á hinum Norðurlöndunum. Þetta er áhyggjuefni og þörf á að sporna við þessari þróun. Mæður eru gjarnan taldar veita börnum sínum einna mikilvægustu og áhrifaríkustu kynfræðsluna. Í því ljósi er markmið fyrirliggjandi rannsóknar að kanna sjónarhorn mæðra á þá kynfræðslu sem þær veita börnum sínum. Stuðst er við eigindlega rannsóknaraðferð og voru tekin opin viðtöl við sjö mæður 15 og 16 ára gamalla barna á höfuðborgarsvæðinu. \n \nÍ niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram að allar mæðurnar tóku hlutverk sitt sem meginkynfræðsluaðila barns síns alvarlega og huguðu að ýmsum þáttum við kynfræðsluna. Þeim var meðal annars umhugað um farsæld barna sinna í kynlífi og til þess að svo mætti verða fræddu þær börnin um líkamlega, tilfinninga- og siðferðislega þætti auk áhættuþátta samfara kynlífi. Þær lögðu ríka áherslu á áhættuþættina og þeim stóð mesta ógnin af klámvæðingunni. Svo virtist sem þeim þætti auðveldara að veita dætrum sínum kynfræðslu en sonum og hefðu meiri áhyggjur af áhrifum klámvæðingarinnar í garð dætra sinna en sona. Þá kom fram að þær beittu margvíslegum aðferðum við kynfræðsluna sem höfðu mismunandi gildi og markmið. Aðferðirnar skiptust í: samskiptahætti, aðhaldsaðgerðir, fræðsluefni sem hjálpartæki, gæðastundir, dýrmæta reynslu og fagþekkingu, samband foreldra og styrking fjölskyldutengsla. Teldu mæðurnar barnið farið að stunda kynlíf eða í þann veginn að hefja það, notuðu þær fleiri aðferðir. Allar mæðurnar voru öruggar um að börn þeirra væru ánægð með kynfræðsluna sem þær höfðu veitt þeim, en sumar voru ekki vissar um að fræðslan væri fullnægjandi. Mæðurnar virtust einar um kynfræðsluna heima fyrir; þær fengu mismikinn stuðning feðra barnanna en höfðu miklar væntingar til kynfræðslu skólans. \n \nVonir eru bundnar við að niðurstöðurnar megi nýta til forvarna í kynheilbrigðismálum ungs fólks. Jafnframt leggja þær grunn að áframhaldandi rannsóknum á þessu sviði.
Source: Skemman
Author: Sigurlaug Hauksdóttir 1956
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6992098052
