Work

„Konur þurfa bara að hafa meira fyrir þessu“: Upplifun kvenna í lögmennsku við samningaborðið

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Meginmarkmið rannsóknar þessarar er að varpa ljósi á upplifanir íslenskra kvenna við samningaborðið sem hafa bæði reynslu af vinnumarkaði og reynslu af samningaviðræðum. Leitast er eftir að fanga upplifanir kvenna í lögmennsku, hvort merkja megi áhrif staðalímynda á upplifun þeirra. Hvort kynhlutverk og samfélagslegar væntingar hafi áhrif á þær í samningaviðræðum og hvaða áskorunum þær standa frammi fyrir. Þá var einnig til skoðunar hvaða áskorunum konur í lögmennsku standa frammi fyrir. \nTekin voru viðtöl við níu lögfræðimenntaðar konur með fjölbreytta starfsreynslu sem og fjölbreytta reynslu af samningaviðræðum. Um var að ræða eigindlega rannsókn í formi hálfstaðlaðra viðtala og var aðferðafræði grundaðrar kenningar nýtt við úrvinnslu og túlkun gagna. \nNiðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að konur í lögmennsku þurfi oft á tíðum að hafa meira fyrir trúverðugleika sínum og þurfa að sanna sig meira en karlar við samningaborðið. Að sama skapi að konur þurfi oft á tíðum að leggja meira á sig til þess að komast að borðinu heldur en karlar. Rauði þráðurinn í viðtölunum var sá að konur upplifa að þær þurfi almennt að hafa meira fyrir því að skapa sér traust og trúverðugleika við samningaborðið og sem konur í karllægri stétt. Að konur upplifa að þær þurfi að sanna sig meira til þess að öðlast rödd svo mark sé tekið á þeim sem karlar fá kannski fyrir fram gefið. Að um sé að ræða óáþreifanlega þætti í samfélaginu sem aðallega orsaka þennan veruleika sem konur búa við en um sé að ræða hindrun sem konur hafa aðlagað sig að.
Source: Skemman
Author: Birna Gísladóttir 1980
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6992100103
Cites: 59
Cited by:
Related to: 10