Kynjamismunur einhverfu : hvernig nýta má stuðningsúrræði og óhefðbundnar tjáskiptaleiðir í skólastarfi með stelpum á einhverfurófinu
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Rannsóknum á einhverfu og röskunum á einhverfurófi hefur fjölgað á undanförnum árum og með þeim hefur skilningur á einhverfu aukist til muna. Eins og með mörg heilkenni þá eru engir tveir einstaklingar eins og því geta einkenni einhverfu verið mismunandi á milli manna. Geðlæknirinn Leo Kanner var fyrstur til að lýsa einkennum einhverfu árið 1943, og má segja að þau séu enn í fullu gildi en skilningur manna á bæði eðli og orsökum hennar hefur breyst til muna. Algengi einhverfu hefur einnig aukist en ástæðan er að öllum líkindum tilkomin vegna aukins skilnings á einhverfu og öðrum röskunum á einhverfurófi. Einhverfa er einnig talin vera mun algengari hjá strákum en stelpum, en um þrír til fjórir strákar greinast á ári hverju með röskunina á móti hverri stelpu sem greinist. \nEinkennin geta verið mismunandi á milli kynja og eru þau oft talin almennt vægari hjá stelpum en strákum. Staðreyndin er hins vegar sú að einkennin eru ekki endilega vægari hjá stelpunum, heldur tekst þeim betur að fela einkenni sín og fylgja hjörðinni með því að láta lítið á sér bera. Í þessari ritgerð er einhverfa tekin fyrir með sérstakri áherslu á stelpur, og hvernig stuðningsúrræði og óhefðbundnar tjáskiptaleiðir geta nýst þeim í námi og starfi. Ýmis úrræði eru notuð til þess að hjálpa börnum með einhverfu til að takast á við áskoranir daglegs lífs, en í verkefni þessu verða tekin fyrir snemmtæk íhlutun, TEACCH, PECS, Tákn með tali (TMT) og félagshæfnisögur. Allt eru þetta ólík stuðningsúrræði en hvert og eitt þeirra hefur sína kosti. Litið verður til þess hvernig þessi úrræði nýtast stelpum með einhverfu sérstaklega. Niðurstöðurnar í verkefni þessu sýndu að úrræðin geta skipt sköpum í lífi þeirra ef þeim er beitt á réttan hátt og á réttu tímabili æviskeiðs þeirra.
Source: Skemman
Authors: Berglind Karlsdóttir, Karitas Fríða Wiium Bárðardóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Cognitive Neuroscience
Field: Neuroscience
Domain: Life Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6992247468
