Work

Langvarandi verkir í fótlegg; Er miðlægt álagsheilkenni í sköflungi forveri álagsbrots í sköflungsbeini?

Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Langvarandi verkir í fótlegg hjá íþróttamönnum er algengt vandamál og hafa rannsóknir sýnt að á milli 12,8-82,4% íþróttamanna fá langvarandi einkenni í fótlegg að minnsta kosti einu sinni á sínum íþróttaferli. Mismunagreining á miðlægu álagsheilkenni í sköflungi (MTSS) og álagsbroti í sköflungsbeini (TSF) getur verið erfið þar sem þessi álagseinkenni eru áþekk og margir halda að MTSS sé forveri TSF. \n\tMarkmið: Lítið fræðilegt efni er til á íslensku um MTSS og TSF og var markmið þessarar ritgerðar að kanna hvort áhættuþættir þessara álagseinkenna séu þeir sömu og hvort MTSS sé forveri TSF. \n\tAðferð: Kerfisbundin leit var framkvæmd. Gagnabankarnir pubmed.com og scholar.google.com voru notaðir. Rannsóknirnar þurftu að vera á ensku og tengjast áhættuþáttum MTSS og TSF hvort sem áhættuþættirnir voru skoðaðir saman eða í sitthvoru lagi. \n\tNiðurstöður: Alls voru níu rannsóknir sem fundust um áhættuþætti MTSS og TSF með leitarorðum í gagnabanka og fimm rannsóknir frá öðrum leiðum sem uppfylltu leitarskilyrði. Niðurstöður sýndu að 1) áhættuþættir MTSS og TSF eru í mörgum tilfellum þeir sömu og því eru þessi tvö álagseinkenni oft rannsökuð saman og 2) það sem ýtir undir að MTSS sé ekki forveri TSF er að íþróttamaður getur fengið slæm MTSS einkenni án þess að fá TSF og íþróttamaður getur fengið TSF án þess að fá MTSS á undan. \n\tÁlyktun: Nauðsynlegt er að sjúkraþjálfarar þekki mun á einkennum MTSS og TSF sem og áhættuþætti til að geta veitt skilvirka meðferð og unnið að forvörnum með ungum íþróttamönnum til að reyna að komast hjá þessum álagseinkennum sem eru alltof algeng.
Source: Skemman
Author: Linda Björk Valbjörnsdóttir 1992
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6992274699
Cites: 22
Cited by:
Related to: 10