Living condition of indigenous people and relations of gender in the Arctic in light of rapid climate change and globalization
Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Það er mörgu að huga að þegar að það kemur að málefnum Norðurslóða. Á síðustu árum hafa gífurlegar breytingar orðið á umhverfi norðurslóða í kjölfar hlýnunar jarðar. Þessar loflagsbreytingar ásamt hraðfara hagrænni hnattvæðingu hafa ekki einungis áhrif á umhverfið og dýralíf heldur einnig þróun lífskjara á norðurslóðum. Umhverfið og vistkerfið á norðurslóðum er gríðarlega viðkvæmt og hafa umhverfis- og loftslagsbreytingar víðtækari áhrif á norðurslóðum en annars staðar í heiminum. Svæðið er gríðarlega stórt og fjölbreytt og einkennist af sterkri menningararfleið og menningarlegum fjölbreytileika. Frumbyggjar í dag eiga undir högg að sækja í kjölfar hlýnun jarðar vegna þeirra áhrifa sem að loftlagsbreytingar hafa á umhverfi þeirra og auðlindir. Með hlýnandi loftslagi á Norðurslóðum og sífeldum breytingum á náttúrulegu umhverfi frumbyggja koma nýjir þættir inn í söguna sem að stefna öryggi og velferð frumbyggja á norðurslóðum í hættu. Þessi ritgerð fjallar almennt um loftlagsbreytingar og áhrif þeirra á þróun lífskjara á norðurslóðum ásamt því að farið verður yfir öryggi, velferð, ólíka stöðu kynjanna og stöðu frumbyggja á norðurslóðum.
Source: Skemman
Author: Inga Hrönn Ólafsdóttir 1988
Institution: University of Akureyri
Language: English
Subfield: Anthropology
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Climate action
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6992441931
