Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Í þessari rannsókn er leitast við að ákvarða sambandið milli ferðalaga og kulnunar, ásamt því að kanna hvort ánægja með þjálfara, meðal íþróttafólks á Íslandi, hefði samvirkniáhrif á sambandið. Nánar tiltekið spyr rannsóknarspurningin hvort að skoðun íþróttafólks á ferðalögum geti haft bein áhrif á kulnun, ásamt því hvort að ánægja með þjálfara geti haft áhrif á sambandið og því virkað sem verndandi þáttur gegn kulnun þegar ferðalög eru álitin neikvæð. Einkenni kulnunar voru mæld með íslenskri þýðingu af „Athlete Burnout Questionnaire“ (ABQ). Rannsóknin byggir á gögnum sem fengin voru með spurningalistakönnun sem svarað var af 83 íþróttafólki á aldrinum 18-41, og eru síðar greind með tvíhliða dreifigreiningu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að skoðun íþróttafólks á ferðalögum hefur ekki bein áhrif á kulnun. Hinsvegar sýna niðurstöður fram á samvirkniáhrif af ánægju með þjálfara á samband ferðalaga og kulnunar á einni vídd hennar; „minnkuð tilfinning gagnvart afrekum“, en samvirkniáhrif eru ekki marktæk á hinum tveimur víddum ABQ. Þessi rannsókn styður við sívaxandi fjölda upplýsinga um kulnun meðal íþróttafólks og undirstrikar þörfina á alhliða nálgun til þess að styðja við almenna vellíðan þeirra. Framtíðarrannsóknir ættu að huga að því að nota stærri og fjölbreyttari úrtök íþróttafólks í þeim tilgangi að skera úr um hvort ánægja með þjálfara geti einnig haft marktæk samvirkniáhrif á sambandið milli ferðalaga og hinna tveggja vídda kulnunar. \nLykilhugtök; kulnun, íþróttafólk, ferðalög, ánægja með þjálfara
Source: Skemman
Author: Eydís Eir Óttarsdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6992462060
