Work

Líðan og viðhorf framhaldsskólanema Athyglisbrestur, þunglyndi eða kvíði – er það nokkuð að hrjá nemendur í blóma lífsins?

Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Umræður hafa verið um að bæta þurfi þjónustu við börn og unglinga sem glíma við geðrænar raskanir (Embætti landlæknis, 2000; Geðhjálp, 2008). Athyglisbrestur með eða án ofvirkni (Attention-deficit/hyperactivity disorder, ADHD), þunglyndi (depression) og kvíði (anxiety) eru meðal algengustu geðraskana hjá börnum og unglingum (Belfer, 2008) sem geta haft alvarleg áhrif á framtíðarhorfur þeirra (Baksheev, Robinson, Cosgrave, Baker og Yung, 2011; Belfer, 2008). \n \nKönnun var lögð fyrir 1599 þátttakendur þar sem meðalaldur var 17,6 ár, í 13 framhaldsskólum á Íslandi haustið 2013. Eiginlegt svarhlutfall í rannsókninni var 83,9%. Í könnuninni var meðal annars safnað upplýsingum um geðræn einkenni, félagslega stöðu nemenda í skólanum, einelti og viðhorf til kennara og skólans. Markmið þessarar rannsóknar var margþætt: (1) að kanna hvort tengsl væru á milli einkenna athyglisbrests og þunglyndis eða kvíða hjá þátttakendum, (2) að skoða hvort þátttakendur sem voru með einkenni athyglisbrests, þunglyndis eða kvíða ættu erfiðar með félagslega stöðu í skólanum og verða fyrir einelti heldur en aðrir þátttakendur, og (3) að kanna hvort viðhorf þátttakenda til kennara og skóla voru neikvæðara eftir því sem þeir fundu meira fyrir einkennum athyglisbrests, þunglyndis og kvíða. \n \nSjálfsmatslistar voru notaðir til að meta að hve miklu leyti þátttakendur fundu fyrir einkennum athyglisbrests (DSM-IV, einkennalisti), þunglyndis og kvíða (depression, anxiety, stress disorder scale-21, DASS-21). Einnig voru félagsleg staða nemenda í skólanum, stuðningur frá kennurum og viðhorf til kennara metin með spurningum úr skólabrag sem tilheyrir alþjóðlegri menntarannsókn (OECD, Programme for international student assessment, PISA). Upplifun af einelti metið með staðhæfingum úr Olweusar áætluninni og viðhorf til skólans metið með spurningum sem settar voru saman fyrir rannsóknina. \nNiðurstöður rannsóknarinnar voru þær að þátttakendur sem greindu frá einkennum er benda til athyglisbrests voru að finna meira fyrir einkennum þunglyndis og kvíða en aðrir þátttakendur. Jafnframt fannst þátttakendum sem greindu frá einkennum athyglisbrests, þunglyndis eða kvíða standa verr félagslega í skólanum og fundu meira fyrir einelti en aðrir þátttakendur. Einnig voru þeir sem greindu frá einkennum athyglisbrests, þunglyndis og kvíða líklegri til að: a) hafa neikvætt viðhorf til kennara, b) finna fyrir minni stuðningi frá kennurum, og c) hafa neikvætt viðhorf til skólans. Þessar niðurstöður sýna að ástæða sé til að fylgjast með einkennum geðraskana meðal framhaldsskólanema með það í huga að bæta líðan þeirra reynist vandinn til staðar. Á þessum aldri eru unglingar að búa sig undir framtíðina og því mikilvægt að beita snemmtækri íhlutun til að fyrirbyggja langvarandi erfiðleika.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6992473116
Cites: 53
Cited by:
Related to: 10