Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur þessarar fræðilegu úttektar var að skoða líðan kvenna sem liggja rúmlegu á meðgöngu og hvaða áhrif rúmlegan getur haft á konuna og fjölskyldu hennar. Skoðað var hvort ljósmæður gætu gert eitthvað betur í umönnun kvenna sem liggja rúmlegu á sjúkrahúsi og hvort hægt væri að sinna þessum skjólstæðingum inni á heimilum. Einnig var skoðað hvort gagnreynd þekking byggi að baki þess að nota rúmlegu sem meðferð á meðgöngu eða hvort meðferðin byggðist að mestu leyti á reynsluþekkingu og hefð. \nÍ niðurstöðum kemur fram að rúmlega getur haft neikvæðar afleiðingar á líkamlega og andlega heilsu konunnar og fjölskyldu hennar. Ekki fundust neinar rannsóknir sem styðja notkun rúmlegu á meðgöngu og því var ekki hægt að sýna fram gagnsemi meðferðaúrræðisins. Rúmlega heima virðist ekki minnka kvíða kvenna, en almennt líður konum betur á rúmlegu heima en á sjúkrahúsi. Rannsóknir benda til almennrar ánægju með heimaþjónustu kvenna í áhættumeðgöngu bæði á meðal skjólstæðinga og heilbrigðisstarfsmanna. \nÞörf er á íslenskum rannsóknum á líðan kvenna sem liggja rúmlegu á meðgöngu. En meirihluti rannsóknarniðurstaða koma frá Bandaríkjunum. Mikilvægt er að ljósmæður og læknar hafi þekkingu á helstu afleiðingum sem rúmlega getur haft í för með sér til að hægt sé að bæta líðan þessara skjólstæðinga. \n \nLykilorð: Rúmlega, takmörkun á hreyfingu, á meðgöngu, áhættumeðganga, andleg líðan og sálfélagsleg líðan.
Source: Skemman
Author: Rakel Ösp Hafsteinsdóttir 1982
Language: Icelandic
Subfield: General Health Professions
Field: Health Professions
Domain: Health Sciences
Keywords: comprehensive care, women's health, midwifery, home birth, hospital birth, women's experiences, physical and mental health, home care, evidence-based practice, midwifery education, midwifery research, midwifery practice, midwifery leadership, midwifery management, midwifery education reform, midwifery workforce
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6992572445
