Work

Lífaflfræði hnés og búks hjá strákum og stelpum í gabbhreyfingu: Áhrif þreytu og hliðar

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Markmið: Slit á fremra krossbandi í hné er alvarlegur áverki sem hefur oft mikil áhrif, t.d. vegna skurðaðgerða og margra mánaða endurhæfingar. Kvenkyns íþróttamenn eru mun líklegri til að slíta fremra krossband en karlar og meirihluti allra slita eru án snertingar við aðra þegar einstaklingurinn er að hægja á sér, breyta um stefnu, eða við að lenda á öðrum fæti. Þetta gerist allt samfara stórum ytri kröftum sem verka á liðinn. Ákveðnar hreyfingar og hreyfiaflfræðilegar breytur eru þekktar sem áhættuþættir fyrir sliti á fremra krossbandi en rannsóknir á þessu sviði hafa aðalleg einblínt á einstaklinga eftir kynþroska. Markmið þessarar rannsóknar var að meta hvort munur væri á kynjunum, í hreyfingum í breiðskurðarsniði í hné og búk ásamt kraftvægi í hné og ytri krafti frá jörðu (gagnkrafti) í sama sniði, milli stúlkna og drengja. Þetta var skoðað í lendingarfasanum í hliðarskrefs gabbhreyfingu. Að auki voru áhrif þreytu og hliðar (hægri/vinstri) skoðuð á þessa þætti. \nAðferðir: Alls voru 128 einstaklingar (76 stúlkur og 52 drengir) fengnir til þátttöku frá handbolta- og fótboltaliðum á Reykjarvíkursvæðinu. Eftir að hafa hitað upp á hjóli í 5 mínútur, gerðu þau hliðarskrefs gabbhreyfingu (5 endurtekningar fyrir hvorn fót) þar sem stigið var á AMTI kraftplötu á meðan átta myndavélakerfi frá Qualisys var notað til að taka upp hreyfingar í þrívídd. Eftir að þátttakendur voru þreyttir í 5 mínútur á skautabretti var ferlið endurtekið. Stöðufasinn var skoðaður frá fyrstu snertingu við plötuna og út fyrstu 50% af standfasanum (50% SF). Ásamt lýsandi tölfræði var fjölþáttagreining notuð til að meta hreyfingar og hreyfiaflfræðilegar breytur með tilliti til hliðar (fótar), þreytu og kyns. Marktektarmörk voru sett við 0,05. \nNiðurstöður: Kraftvægi í hné: Það var marktækur munur á milli kynja á hámarks fráfærslukraftvægi í hné og var það hærra hjá strákum (0,4 Nm/kg miðað við (m.v.) 0,26 Nm/kg; p<0,001). Hámarks láréttur gagnkraftur: Marktækt hærri kraftur fannst við þreytu (8,18 N/kg m.v. 7,71 N/kg; p<0,001). Hreyfing í hné: Marktækt víxlhrif hliðar og þreytu (p=0,018), og þreytu og kyns (p=0,025), sáust í hreyfingunni í fyrstu 50% af standfasanum (50% SF). Hreyfingin var meiri hægra megin eftir þreytu og voru þau áhrif meiri hjá stelpunum samanborið við strákana. Að auki voru marktækt víxlhrif hliðar og þreytu (p=0,011) á hámarks fráfærslu (valgus) í 50% SF, þ.e. meiri fráfærsluhreyfing hægra megin við þreytuna. Við upphaf standfasa voru megináhrif þreytu og hliðar þar sem hnén voru meira í fráfærslu við þreytu (0,1° m.v. 1,0°; p=0,019) og einnig hægra megin (1,0° m.v. 0,1; p=0,008). Hreyfingar í búk: Megináhrif hliðar fundust fyrir hreyfinguna í breiðskurðarsniði vegna meiri hliðarsveigju að stöðufæti vinstra megin miðað við hægra megin (10,1° m.v. 8,7°; p<0,001). Megináhrif þreytu sáust einnig með almennt minni hreyfingu í átt að stöðufæti eftir þreytu (p=0,006). Við upphaf standfasa var hallinn meiri í átt að stöðufæti hægra megin (p<0,001) og meiri halli til hægri eftir þreytu (p=0,050). \nÁlyktun: Þessar niðurstöður sýna að þreyta hefur áhrif á hreyfimunstur og auki álag á hnéliðinn við hliðarskrefs gabbhreyfingu. Einnig að kynbundinn munur er á milli kynja um og fyrir kynþroska Að auki er hreyfimunstur mismunandi milli hliða og hafa þreyta og kyn þar áhrif á. Þetta bendir til þess að það sé best að byrja forvarnaræfingar fyrir krossbandaslit um og fyrir unglingsárin. Einnig að kyn, þreytu og ríkjandi fót verði að hafa í huga í því samhengi. Frekari rannsókna er þörf á þessum aldurshópi til að kanna hvort forvarnir sem byrja fyrir kynþroska geti haft jákvæð áhrif á hreyfimunstur íþróttamanna og þar með minnkað líkurnar á krossbandameiðslum.
Source: Skemman
Author: Hjálmar Jens Sigurðsson 1974
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6992592512
Cites: 103
Cited by: 1
Related to: 10