Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að mæla lesfimi í bekkjum íslenskra grunnskóla til að sjá hvort um væri að ræða bjaga í prófunum, eða hin svokölluðu sumaráhrif. Lestrarkunnátta er skilgreind sem nákvæmur lestur, án þess að lesandinn einbeiti sér að hverjum bókstaf eða einstöku orði. Fyrsta tilgátan var að nemendum gengi verr í lesfimiprófi þegar þeir færu úr fjórða yfir í fimmta bekk og einnig þegar þeir færu úr sjötta yfir í sjöunda bekk. Seinni tilgátan var að það yrði aukning í lesfimi í texta A frá því að hann var lagður fyrir, árið 2023, og þangað til hann var lagður fyrir aftur, árið 2024. Þessi rannsókn notaði niðurstöður frá tveimur árgöngum íslenskra grunnskóla (N = 460). Markmiðið var að bera saman niðurstöður lesfimiprófa frá tveimur hópum nemenda, fjórða bekkjar (2023) og aftur fimmta bekkjar (2024). Annað úrtak var tekið úr sjötta bekk (2023) yfir í sjöunda bekk (2024). Fyrsta prófið var lagt fyrir í maí (texti A), og síðan nýtt próf í hvort tveggja september (texti B) og janúar (texti B). Texti A var aftur lagður fyrir í febrúar til að mæla bjaga í prófunum. Það var marktækur munur á texta A og texta B á báðum hópum, sem sýndi lakari niðurstöður að meðaltali þegar nemendur lásu texta B. Hins vegar bættu nemendur sig um munar þegar texti A var lesin aftur í febrúar, sem benti til bjaga í texta B.
Source: Skemman
Author: Davíð Örn Hugus
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6992628512
