Mikilvægi nútímafærniþátta fyrir námsgengi unglinga
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Í þessu rannsóknarverkefni er markmiðið að kanna tengsl nútímafærniþáttanna samviskusemi, samvinnuþýði og sköpunarhæfni og afstöðu nemenda til gildis náms við óæskilega skólahegðun. Einnig var markmiðið að kanna tengsl ofangreindra þátta auk óæskilegrar skólahegðunar við námsgengi hjá nemendum í 10. bekk á höfuðborgarsvæðinu. Notuð voru gögn úr alþjóðlegu langtímarannsókninni Borgarbörn, en hún náði til 1948 nemenda. \nStúlkur sýndu að jafnaði minni óæskilega skólahegðun og betri námsárangur á samræmdum prófum í 10. bekk en drengir. Eftir því sem menntunarstig foreldra var hærra því minni var óæskileg skólahegðun nemenda og því betur stóðu þeir sig á samræmdum prófum. Niðurstöður fjölbreytuaðhvarfsgreiningar sýndu að eftir því sem nemendur voru samviskusamari og töldu nám sitt hafa meira gildi sýndu þeir minni óæskilega skólahegðun að teknu tilliti til bakgrunns nemenda (kyns og menntunar foreldra). Auk þess kom fram að eftir því sem nemendur voru meira skapandi þeim mun meiri óæskilega skólahegðun sýndu þeir. Niðurstöður fjölbreytuaðhvarfsgreiningar fyrir námsgengi sýndu að eftir því sem nemendur voru samviskusamari og sýndu minni óæskilega skólahegðun því hærri var meðaleinkunn þeirra á samræmdum prófum í 10. bekk að teknu tilliti til bakgrunns nemenda. \nRannsóknin gefur innsýn í mikilvægi nútímafærniþátta fyrir skólagöngu unglinga. Niðurstöðurnar eru í samræmi við erlendar rannsóknir en rannsóknin styður við þá hugmynd að skólar leggi áherslu á nútímafærniþætti í skólastarfinu.
Source: Skemman
Author: Hildur Björk Möller 1992-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6992854859
