Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Umfjöllunarefni þessarar fræðilegu samantektar eru einstaklingar sem sprauta vímuefnum um æð með sérstakri áherslu á skaðaminnkandi nálgun. Þessir einstaklingar búa almennt við skert lífsgæði og verra heilsufar en aðrir. Tilgangur samantektarinnar er að skoða hvaða sérstöku heilbrigðisvandamál herja á þennan hóp og hvernig hægt sé að mæta þörfum þeirra betur. Fjallað verður um helstu heilsufarsvandamál þessara einstaklinga og hvaða hindranir mæta þeim í heilbrigðiskerfinu. \nSkaðaminnkun felur í sér að draga úr og fyrirbyggja heilsufarslegan, félagslegan, fjárhagslegan og samfélagslegan skaða sem hlotist getur af neyslu vímuefna. Grunnmarkmið skaðaminnkunar eru: að halda lífi, viðhalda lífsgæðum og bæta heilsu. Sérstaklega verður fjallað um þrjár gerðir skaðaminnkandi úrræða sem falla að þörfum einstaklinga sem sprauta sig, þau eru: nálaskiptiþjónustur, neyslurými og viðhaldsmeðferðir. Skoðaður verður árangur þessara úrræða þar sem þau hafa verið innleidd, auk þess að fjallað verður um þau úrræði sem eru í boði á Íslandi. Að lokum velta höfundar fyrir sér framtíðarsýn í skaðaminnkandi heilbrigðisþjónustu á Íslandi og koma með tillögur til úrbóta.
Source: Skemman
Authors: Gígja Skúladóttir 1984, Þórunn Helga Ármannsdóttir 1989
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6992965600
