Work

Ný kynslóð kallar á breyttar áherslur : er munur á væntingum Z kynslóðar til vinnumarkaðar eftir lífsskeiðum?

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Þessi ritgerð fjallar um Z kynslóðina, sem samanstendur af fólki fæddu á árunum 1997 - 2012 og innkomu þeirra á vinnumarkað. Farið verður yfir þær kynslóðir sem nú þegar eru á vinnumarkaði með tilliti til einkenna og þarfa hverrar kynslóðar fyrir sig og svo lögð sérstök áhersla á Z kynslóðina. Markmið verkefnisins er að skoða hvaða væntingar Z kynslóðin hefur til vinnumarkaðar og hvort að þær séu breytilegar eftir lífsskeiðum og aukinni persónulegri ábyrgð. Til þess að komast að því var sett fram rannsóknarspurningin: \n-\tEr munur á væntingum Z kynslóðarinnar til vinnumarkaðar eftir lífsskeiðum? \nFramkvæmd rannsóknarinnar skiptist í tvo hluta. Fyrst var sett fram megindleg rannsóknaraðferð í formi rafrænnar spurningakönnunar og henni dreift á viðeigandi síður á samfélagsmiðlum. Næst var beitt eigindlegri rannsóknaraðferð og tekin voru viðtöl við einstaklinga af Z kynslóðinni sem öll voru á mismunandi lífsskeiðum. \nNiðurstöður úr spurningakönnun og viðtölum benda sterklega til þess að það sé munur á væntingum einstaklinga innan Z kynslóðarinnar til vinnumarkaðar eftir lífsskeiðum. Eldri spönn kynslóðarinnar er í flestum tilfellum ekki tilbúin að taka áhættu hvað varðar starfsöryggi og laun en yngri spönn kynslóðarinnar er mun frekar tilbúin að íhuga það. Enn fremur gáfu niðurstöður rannsóknarinnar til kynna að einstaklingar kynslóðarinnar sækist flestir eftir því að starfa hjá sínu fyrirtæki til lengri tíma, óháð lífsskeiði. \n \nLykilorð: Vinnumarkaður, Z kynslóð, stjórnun, starfsmannavelta, mannauður
Source: Skemman
Author: Kolfinna Jóna Baldursdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6993178183
Cites: 30
Cited by:
Related to: 10