Work

Notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum í markaðssetningarskyni : hvaða skyldur þarf að uppfylla við notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum í markaðssetningarskyni: Hvaða skyldur þarf að uppfylla við notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum? \nMeginmarkmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á þau álitaefni sem geta vaknað í tengslum við notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum til að beina skilaboðum til notenda miðlanna í aðdraganda kosninga. Gerð verður grein fyrir því hver gegnir hlutverki ábyrgðaraðila og vinnsluaðila. Þá verður gerð grein fyrir hvaða skyldur þarf að uppfylla við notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum í markaðssetningarskyni. Auk þess verður skoðað til hvaða ráðstafana stjórnmálasamtök þurfi að grípa til svo fullnægjandi persónuvernd sé tryggð samkvæmt lögum nr. 90/2018. Reglugerð (ESB) nr. 2016/679 var innleidd með framangreindum lögum. Til þess að geta greint frá hvaða skyldur stjórnmálasamtök þurfi að uppfylla við notkun á samfélagsmiðla í markaðssetningarskyni þarf að skýra frá gildissviði laga nr. 90/2018. Við afmörkun á gildissviði laganna verða sérstaklega skilgreint hugtökin „persónuupplýsingar“ og „vinnsla“. Fjallað verður almennt um markaðssetningu á samfélagsmiðlum og hlutverk mismunandi aðila sem koma að henni. Stjórnmálasamtök viðhafa mismunandi vinnslu þegar samfélagsmiðlar eru notaðir til að beina markaðsskilaboðum til notenda miðilsins. Því kann niðurstaðan að vera sú að aðilar komi fram í mismunandi hlutverkum. Í því sambandi voru helstu niðurstöður þær að stjórnmálasamtök gegna hlutverki ábyrgðaraðila. Samfélagsmiðlar, auglýsingastofur og greiningaraðilar geta hins vegar gegnt mismunandi hlutverki eftir því hvaða vinnsluaðferð er notuð. Hvað varðar réttarsamband stjórnmálasamtaka og annarra aðila getur því reynt á sjónarmið um sameiginlega ábyrgð. Að lokum verður skoðað hvaða skyldur þurfi að uppfylla við notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum. Öll vinnsla verður að byggja á heimild í lögum nr. 90/2018. Stjórnmálasamtök geta byggt vinnslu persónuupplýsinga notenda samfélagsmiðla í markaðssetningarskyni á samþykki og lögmætum grundvelli. Helstu niðurstöður voru þær að stjórnmálasamtök þurfi að grípa til ráðstafana til að tryggja að hinir skráðu einstaklingar fái skýra og aðgengilega fræðslu til að vinnsla teljist lögmæt og gagnsæ. Stjórnmálasamtök geti ekki gengið út frá því með vissu að fræðsla samfélagsmiðla sé í samræmi við lög nr. 90/2018.
Source: Skemman
Author: Sylvía Rut Sævarsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Law
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6993233406
Cites: 10
Cited by:
Related to: 10