Work

Ofbeldisfull öfgahyggja og ungt fólk : staða þekkingar og mikilvægi forvarna

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Öfgahyggja (e. extremism) er áhyggjuefni um allan heim og að sumra mati ein helsta ógnin við öryggi, stöðugleika og velmegun þjóðríkja og alþjóðasamfélagsins. Er það sérstaklega vegna tengsla öfgahyggju við ofbeldi og hryðjuverk og þeirra alvarlegu afleiðinga sem hún hefur á einstaklinga, hópa fólks og samfélagið í heild sinni. Rannsóknir benda til þess að ungt fólk í Evrópu sé í auknum mæli að tileinka sér ofbeldisfulla öfgahyggju (e. violent extremism) og unglingsárin hafa verið skilgreind sem sérstakur áhættuþáttur fyrir ofbeldisfulla öfgahyggju. \nMeistaraverkefni þetta er rannsóknarritgerð. Markmiðið er að kortleggja þá þekkingu sem er til staðar um öfgahyggju og þá sérstaklega ofbeldisfulla öfgahyggju. Lögð er áhersla á ungt fólk í Evrópu og mikilvægi forvarna gegn því að ungt fólk tileinki sér ofbeldisfulla öfgahyggju. Rannsóknarritgerðin er að mestu leyti byggð á erlendum rannsóknarniðurstöðum, ritrýndum fræðigreinum, skýrslum og bókum um öfgahyggju og ofbeldisfulla öfgahyggju. \nLeitast var við að svara því hvað ofbeldisfull öfgahyggja er og hvernig hún birtist hjá ungu fólki, hverjir helstu áhættuþættir og helstu verndandi þættir eru fyrir ungt fólk gagnvart ofbeldisfullri öfgahyggju og hvort, og þá með hvaða hætti, þátttaka í skipulögðum tómstundum geti verið forvörn gegn ofbeldisfullri öfgahyggju ungs fólks. \nNiðurstaðan er sú að ofbeldisfull öfgahyggja ungs fólks hefur mismunandi birtingarmyndir og tengist fjölda áhættu- og verndandi þátta. Þátttaka í skipulögðu tómstundastarfi getur verið mikilvæg forvörn gegn því að ungt fólk tileinki sér ofbeldisfulla öfgahyggju og gangi til liðs við öfgahópa eða hryðjuverkasamtök. Það er sérstaklega vegna þeirra jákvæðu áhrifa sem þátttaka í tómstundum getur haft á þátttakandann, einkum vegna áhersluþátta í starfinu sem byggja á menntunar-, forvarnar-, félags- og uppeldisgildum og viðmiðum sem og vegna mikilvægi þeirra sem starfa í skipulögðu tómstundastarfi með ungu fólki. \nTilgangurinn með rannsóknarritgerðinni var að skapa nýja þekkingu fyrir íslenskt fræðasamfélag svo hægt verði að takast á við ofbeldisfulla öfgahyggju hjá ungu fólki í íslensku samfélagi með frekari rannsóknum á umfangi, birtingarmyndum og þróun á Íslandi. Með því er lagður grunnur svo hægt verði að móta og þróa verklag og verkfæri fyrir forvarnarstarf og inngrip fyrir fólk sem starfar með ungu fólki í skipulögðu tómstundastarfi og leggja grunninn að þróun gagnreyndra aðferða.
Source: Skemman
Author: Sema Erla Serdaroglu
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6995515923
Cites: 169
Cited by: 1
Related to: 10