Work

Phosphorylation of MITF S73 and its role in melanoma cell proliferation

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Sortuæxli er hættulegasta gerð húðkrabbameins og uppruni þess er rakinn til litfruma. Um 60% allra sortuæxla hafa BRAFV600E stökkbreytingu með þeim afleiðingum að MAPK boðferilinn verður ofvirkur. Umritunarþátturinn MITF (microphthalmia associated transcription factor) er afar mikilvægt stjórnprótein í litfrumum og sortuæxlum þar sem það hefur verið nefnt frumulínu sértækt æxlisgen. MITF er fosfórýlerað á serín73 (S73) vegna fyrrnefnds MAPK boðferils. Þessi ákveðna fosfórun hefur verið tengd umritunarvirkjun, niðurbroti og flutningi MITF úr kjarna. Hér skoðum við áhrif þessarar fosfórunar á umritunarhæfni MITF, hraða frumuskiptingar og frumufar í sortuæxlisfrumum. Til þess að skoða þetta voru gerðar tvær stökkbreytingar í villigerðar MITF, annars vegar S73A sem getur ekki verið fosfórað og S73E sem líkir eftir fosfórun á S73. Í ljós kom að stökkbrigðin tvö skiptu sér um tvöfalt hraðar en villigerð. Þar að auki hafði meðferð með sértækum S73 forfórunar hindra, vemurafenib (PLX), ólík áhrif á frumulínunnar háð arfgerð þeirra. Frumufar villigerðar MITF frumulínunnar var einnig minnkað. Mikilvæg prótein í stjórn frumuhringsins voru misjafnlega tjáð milli frumulína. Frumuhrings tengdu genin p21, CDC25A og CDC16 voru auk þess mis mikið umrituð í stökkbrigðunum miðað við villigerð. Tekið saman gefur þetta til kynna áhrif S73 fosfórunar á breytta umritun MITF og áhrif á frumufar og hraða frumuskiptinga í sortuæxlisfrumum.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6995762934
Cites: 36
Cited by:
Related to: 9