Work

Pólitísk skautun í íslensku samfélagi. Samhugur og aðgreining

Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Rannsóknir í Bandaríkjunum hafa sýnt aukna fjarlægð milli hópa sem aðhyllast ólíka stjórnmálaflokka, nefnt pólitísk skautun. Þó er umdeilt hvort skautunin sé í raun og veru hugmyndafræðileg því ýmsar rannsóknir hafa bent til þess að skynjuð skautun sé oft meiri en raunveruleg skautun. Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða pólitíska skautun á Íslandi. Í fyrri hluta rannsóknarinnar var skoðað hvort greina mætti hugmyndafræðilega skautun meðal kjósenda ólíkra stjórnmálaflokka á Íslandi árin 2007 og 2016, og þróun hennar athuguð. Í seinni hluta rannsóknarinnar var send út netkönnun til þess að athuga skynjaða skautun á Íslandi. Niðurstöður fyrri hluta rannsóknarinnar sýndu að á þessum árum hélst hugmyndafræðileg skautun almennings stöðug eða minnkaði. Þó virðist sem frekari aðgreining í flokka hafi átt sér stað í vissum málefnum. Niðurstöður seinni hluta rannsóknarinnar benda til þess að á Íslandi upplifi fólk aukna pólitíska skautun á síðastliðnum árum. Að öllu jöfnu virðist skynjuð skautun vera í litlu samræmi við hugmyndafræðilega skautun almennings en sé mögulega frekar tengd aðgreiningu í flokka eftir einstaka málefnum.
Source: Skemman
Authors: Guðjón Kristjánsson 1993, Hafsteinn Ragnarsson 1993
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6995785699
Cites: 12
Cited by:
Related to: 10