Prevalence and Trajectory of Depressive Symptoms Among COVID-19 Infected Individuals: An Icelandic Cohort Study
Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Rannsóknir hafa sýnt fram á þunglyndiseinkenni hjá sjúklingum eftir veirusýkingu, þar á meðal eftir COVID-19 sýkingu. Hins vegar er skortur á rannsóknum sem meta algengi, þróun og áhættuþætti þunglyndiseinkenna hjá einstaklingum sem hafa veikst af COVID-19. Markmið þessara rannsóknar var því að meta þróun þunglyndiseinkenna meðal einstaklinga sem greindust með COVID-19 í upphaf faraldurs (apríl-júlí 2020), á þremur mismunandi tímapunktum meðan faraldurinn stóð yfir. Einnig að meta tengsl þunglyndiseinkenna og bakgrunnsþætti og alvarleika veikinda á meðal þeirra sem greindust með COVID-19. \nÞátttakendur voru 6674 karlar og konur 18 ára og eldri búsett á Íslandi sem tóku þátt í ferilrannsókninni, Líðan þjóðar á tímum COVID-19. Gagnasöfnun fór fram í upphafi faraldursins (apríl – júlí 2020 (bylgja 1); desember 2020 – mars 2021 (bylgja 2) og maí – ágúst 2021 (bylgja 3). Spurningar um COVID-19 greiningu og núverandi þunglyndiseinkenni (metin með Patient Health Questionnaire 9 item, PHQ-9) voru metnar á öllum tímapunktum rannsóknarinnar. Generalized estimating equations (GEE) líkön voru notuð til að reikna algengihlutföll (AH) með 95% öryggisbili (ÖB) til að áætla tengslin milli COVID-19 greiningar og þunglyndiseinkenna eftir bylgjum. Leiðrétt var fyrir aldri, kyni, líkamsþyngdarstuðli, menntun, tekjum og atvinnustöðu. \nUm 2% þátttakenda greindust með COVID-19 í upphaf faraldursins. Af þeim greindu 18% frá þunglyndiseinkennum (PHQ-9 heildarstig ≥ 10) í bylgju 1; 16% í bylgju 2 og 11% í bylgju 3. Tengslin milli COVID-19 greiningar og þunglyndiseinkenna voru ekki martæk (p = 0.232). Einstaklingar sem greindust með COVID-19 í byrjun faraldursins voru ekki marktækt líklegri til að vera með þunglyndiseinkenni í bylgju 2 eða 3, samanborið við bylgju 1. Við mat á áhættuþáttum fundum við að algengi þunglyndiseinkenna var hærra á meðal þeirra sem voru rúmliggjandi vegna COVID-19 samborið við þá sem voru aldrei rúmliggjandi; hæst meðal þeirra sem voru rúmliggjandi í 2 vikur eða lengur (AH = 3,09; 95% ÖB: 1,46-6,54). Algengi þunglyndiseinkenna á meðal þeirra sem greindust með COVID-19 var lægra hjá þeim sem voru 50 ára og eldri samanborið við þá sem voru 18-34 ára (AH = 0,38; 95% ÖB: 0,18-0,78). \nNiðurstöður leiddu í ljós að þunglyndiseinkenni lækkuðu á milli bylgna yfir 16 mánaða tímabil, bæði hjá þeim sem greindust með COVID-19 og þá sem greindust ekki með COVID-19. Algengi þunglyndiseinkenna hjá þeim sem greindust með COVID-19 var hærra meðal þeirra sem voru yngri og þeirra sem voru rúmliggjandi, sérstaklega þeir sem voru rúmliggjandi í tvær vikur eða lengur. Því getur verið nauðsynlegt að veita yngri einstaklingum og þeim sem eru að jafna sig eftir alvarleg veikindi aukinn stuðning.
Source: Skemman
Author: Íris Ósk Bjarnadóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: COVID-19 and Mental Health
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6995952064
