Work

Rapport við rúm sjúklings: Innleiðing breytinga

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að reyna að komast að því, út frá sjónarhorni breytingastjórnunar, hvers vegna ekki hafi tekist að innleiða rapport við rúm sjúklings, í tvígang, á einni deild Landspítala. Rannsókn þessi var unnin með eigindlegri rannsóknaraðferð en tekin voru sjö viðtöl þar sem stuðst var við hálf-stöðluð viðtöl. Allir sjö viðmælendurnir starfa á sömu deild Landspítala og reyndi að innleiða framangreinda breytingu. Leitað var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hver er upplifun hjúkrunarfræðinga á innleiðingu rapports við rúm sjúklings? og í kjölfarið hvað stendur í vegi fyrir að innleiðing rapports við rúm sjúklings haldist í sessi út frá sjónarhorni breytingastjórnunar \nNiðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna að upplifun viðmælenda af innleiðingu rapporti við rúm sjúklings á ýmislegt sameiginlegt með kenningum breytingastjórnunar. Niðurstöðurnar benda til þess að meirihluti viðmælenda töldu mikinn ávinning af því að innleiða breytinguna og vilja sjá hana sem hluta af verklagi deildarinnar en aðrir voru á móti henni að hluta sem gæti reynst áskorun ef stefnt er á innleiðingu að nýju.
Source: Skemman
Author: Laufey Hjaltadóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996099554
Cites: 29
Cited by:
Related to: 10