Samanburður á hlaupurum með framanfótar lendingu og aftanfótar lendingu í óþreyttu og þreyttu ástandi
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Áhugi á hlaupum er mikill og gríðarlegur ávinningur fæst á því að stunda þau reglulega. Á sama tíma er meiðslatíðni há miðað við aðrar hreyfingar tengdar heilsu og því mikilvægt að skoða áhættuþætti sem hægt er að hafa áhrif á og nota í forvarnarskyni eins og þreytustig og lendingar fóta. \nMarkmið: Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort munur sé á þeim breytingum sem verða á hlaupastíl hjá hlaupurum við þreytu eftir mismunandi lendingum fóta og hvort að breytingarnar geti leitt til aukinnar áhættu á meiðslum. \nAðferðir: Rannsóknin er tilraunasniðsrannsókn sem felst í því að bera saman gögn úr gagnagrunni. Svarbreyturnar verða hreyfiferlar (°) og kraftvægi (Nm/kg) um hné og ökkla. Þátttakendur verða 31 í heildina, 14 karlar og 17 konur á aldrinum 20 til 52 ára. Þeim var skipt upp í tvo lendingahópa eftir því hve mikil ristarbeygja var í ökkla við lendingu fótar, framanfótar lending (≤8,5° ristarbeygja ökkla, n = 14) og aftanfótar lending (>8,5° ristarbeygja ökkla, n = 16). Þeir hlaupa 0,2 m/s fyrir ofan mjólkursýruþröskuld þeirra eins lengi og þeir gátu á hlaupabretti með kraftplötu og þrívíddar hreyfigreiningarkerfi. Við tölfræðiúrvinnslu verður notast við línulega blandaða dreifnigreiningu. \nNiðurstöður: Þreyta hafði mismunandi áhrif á hreyfiferla hjá lendingahópunum þegar litið er á ristarbeygju í lendingu fótar, hámarksristarbeygju og hámarkshnébeygju. Þar sem ristarbeygjan minnkaði marktækt hjá þeim sem eru með aftanfótar lendingu (p<0,001) en engin breyting varð hjá þeim sem eru með framanfótar lendingu. Hámarksristarbeygja í stöðufasa jókst hjá þeim sem eru með aftanfótar lendingu (p<0,001) á meðan það varð lítil breyting hjá þeim sem eru með framanfótar lendingu. Þeir sem eru með aftanfótar lendingu fóru í meiri hnébeygju (p=0,049) á meðan lítil breyting varð hjá þeim sem eru með framanfótar lendingu. Það var líka munur á því hvernig þreyta hafði áhrif á kraftvægi þegar litið er á iljarbeygjukraftvægi, hnéréttukraftvægi og fráfærslukraftvægi hlauparanna. Iljarbeygjukraftvægi minnkaði marktækt hjá þeim sem eru með framanfótar lendingu (p<0,001) en hélst óbreytt hjá þeim sem eru með aftanfótar lendingu. Hnéréttukraftvægi hjá hlaupurum með aftanfótar lendingu jókst (p<0,001) en lítil breyting varð hjá þeim sem eru með framanfótar lendingu. Fráfærslukraftvægi var töluvert meira hjá þeim sem eru með framanfótar lendingu (p=0,013) og jókst það með aukinni þreytu (p<0,001). Hjá þeim sem eru með aftanfótar lendingu varð einnig aukning en þó minni (p<0,001). \nÁlyktun: Niðurstöður benda til þess að hlauparar með aftanfótar lendingu séu í meiri áhættu á að þróa með sér meiðsli í kringum hné, á meðan hlauparar með framanfótar lendingu eru líklegri til að lenda í meiðslum í kringum ökkla. Hægt er að nýta þessar upplýsingar í forvarnarskyni; hægt er til dæmis að benda einstaklingum sem eru með framanfótar lendingu að leggja áherslu á að styrkja vöðva í kringum ökkla og þeim sem eru með aftanfótar lendingu að styrkja vöðva í kringum hné til þess að fyrirbyggja meiðsli.
Source: Skemman
Author: Alex Mar Bjarkason
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Biomedical Engineering
Field: Engineering
Domain: Physical Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996266729
