Work

Risk factors and healthy development among youth: The role of self-regulation

Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Námsárangur og farsæll þroski á unglingsárum leggja grunninn að fjölda jákvæðra útkoma seinna á lífsleiðinni. Markmið rannsóknarinnar var að meta áhrif sjálfstjórnar, innbyrðis (kvíði og þunglyndi) og útbyrðis (áhættuhegðun) einkenna á námsárangur og farsælan þroska ári seinna. Einnig var kannað hvort innbyrðis og útbyrðis einkenni meðal ungmenna miðluðu áhrifum sjálfstjórnar á námsárangur og farsælan þroska. Alls voru 400 þátttakendur (44,75% drengir) í sjötta og sjöunda bekk í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi. Niðurstöður formgerðargreiningar (e. structural equation modeling) sýndu að innbyrðis einkenni spáðu verri frammistöðu í stærðfræði og síðri farsælum þroska ári seinna, einkenni áhættuhegðunar spáðu einnig síðri farsælum þroska ári seinna. Hvorugt spáði marktækt fyrir um frammistöðu í íslensku. Meiri sjálfstjórn spáði betri frammistöðu í íslensku, stærðfræði og farsælli þroska ári seinna. Enn fremur komu í ljós tvenns konar marktæk miðlunaráhrif. Annars vegar miðluðu innbyrgðis einkenni áhrifum sjálfstjórnar á frammistöðu í stærðfræði og hins vegar miðluðu útbyrðis einkenni áhrifum sjálfstjórnar á farsælan þroska. Þetta bendir til þess að sjálfstjórn spáir fyrir um frammistöðu í stærðfræði og farsælan þroska ekki aðeins beint heldur einnig óbeint með því að koma í veg fyrir innbyrðis og útbyrðis einkenni meðal ungmenna. Þetta bendir til þess að aðgerðir sem leggja áherslu á að auka sjálfstjórn meðal ungmenna geti haft víðtæk áhrif, ekki aðeins á námsárangur og farsælan þroska heldur einnig með því að draga úr innbyrðis og útbyrðis einkennum meðal ungmenna.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996319242
Cites: 119
Cited by:
Related to: 10