Work

Samanburður á andlegri færni meðal íþróttamanna í MMA og boltaíþróttum

Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Tilgangur rannsóknarinnar var að athuga hvort og þá hvar munur liggur í sálfræðilegri færni, andlegum styrk og keppniskvíða á milli MMA bardagamanna annars vegar og boltaíþróttamanna hins vegar. Megindlegri aðferðarfræði var beitt við gagnaöflun þar sem þátttakendur svöruðu þremur stöðluðum spurningalistum; TOPS, SMTQ og SAS-2. Þátttakendur voru 16 iðkendur í MMA, úr keppnishópi Mjölnis. Niðurstöður voru bornar saman við fyrirliggjandi gögn frá 279 landsliðsmönnum í boltaíþróttum (fótbolta, handbolta og körfubolta). Niðurstöður benda til að MMA íþróttamenn séu færari í að nýta sér skynmyndir heldur en boltaíþróttamenn. Boltaíþróttamenn virðast hins vegar færari í að viðhalda virkni í keppni og finna síður fyrir líkamlegum kvíða. Einnig renna niðurstöður stoðum undir fyrri rannsóknir sem sýna að andleg færni íþróttamanns tengist árangri hans í íþróttinni. Í þessu samhengi skoraði MMA-A hópur hærra en MMAB hópur á þremur þáttum sálfræðilegrar færni og andlegum styrkleikla. MMA-A mældist með minni keppniskvíða en MMA-B. Helstu ályktanir eru að skynmyndun sé viðurkenndari þjálfunaraðferð í MMA heldur en í boltaíþróttum og að sálfræðleg færni tengist reynslu íþróttamannsins.
Source: Skemman
Author: Íris Ósk Jónsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996330865
Cites: 41
Cited by:
Related to: 10