Work

Sendiherrar fyrirtækisins: Starfsánægja hjá starfsfólki Kex Hostels ehf.

Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Fyrirtæki samtímans eru alltaf að leita nýrra leiða til að ná samkeppnisforskoti. Stjórnendur fyrirtækja eru í auknum mæli farnir að átta sig á mikilvægi mannauðs og líta á hann sem helstu auðlind fyritækja og þann eiginleika sem hefur hvað mest áhrif á velgengni þeirra. Til að starfsmaður geti gefið sem mest af sér í starfi þarf hann að vera ánægður í vinnunni. Almenn starfsánægja er eitt það verðmætasta sem framúrskarandi fyrirtæki búa yfir á nútímavinnumarkaði. Hún hefur meðal annars áhrif á frammistöðu, afköst og fjárhagslegan ávinning fyrirtækja. Starfsánægja myndast ekki af sjálfu heldur myndast hún vegna samspils margra mismunandi áhrifaþátta sem tengjast starfinu. \nÍ þessu lokaverkefni var starfsánægja starfsfólks Hex Hostels ehf rannsökuð. Kex Hostel er gistiheimili sem opnað var árið 2011 og stendur framarlega á sínum markaði miðað við ungan aldur. Starfsemi fyrirtækisins er fjölbreytt og felur í sér mörg mismunandi störf. Starfsánægjan var rannsökuð út frá nokkrum mismunandi áhrifaþáttum. Rannsóknin var megindleg og í formi spurningakönnunar. Spurningalistinn innihélt fjórar spurningar og 73 staðhæfingar sem skipt var niður í 10 áhrifaþætti starfsánægju. Í niðurstöðum koma fram meðaltöl sem reiknuð voru til að mæla viðhorf starfsfólks til mismunandi þátta starfsins. Helstu niðurstöður voru að starfsmenn hafa almennt jákvætt viðhorf í garð fyrirtækisins, samskipta við samstarfsfólks og sveigjanleika í vinnunni. Á móti sýndu niðurstöður neikvæðara viðhorf starfsmanna til launakjara, vinnuálags og upplýsingamiðlunar innan fyrirtækisins.
Source: Skemman
Author: Heiðrún Brynja Birgisdóttir 1986
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996344877
Cites: 68
Cited by:
Related to: 10